29.01.1951
Neðri deild: 57. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1242 í B-deild Alþingistíðinda. (2546)
160. mál, læknishéruð
Frsm. (Helgi Jónasson):
Herra forseti. Fyrir hönd heilbr.- og félmn. legg ég hér fram skrifl. brtt., sem er þó varla nema nafnið, því að hér er aðeins um leiðréttingu að ræða. Brtt. er á þessa leið: „Við 1. gr. Fyrir orðin „Í stað 17. og 18. tölul. laganna (fyrir áorðnar breytingar nú 19. og 20.)“ kemur: Í stað 17. og 18. (fyrir áorðnar breytingar 19. og 20. ) tölul. 1. gr. laganna.“ — Ég vona, að deildin geti fallizt á þessa breyt., og hef ekki meira um þetta að segja, en afhendi hér með hæstv. forseta þessa brtt.