06.02.1951
Efri deild: 65. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1244 í B-deild Alþingistíðinda. (2554)
160. mál, læknishéruð
Frsm. (Haraldur Guðmundsson):
Herra forseti. Mér er ekki kunnugt um, að n. hafi verið veittar upplýsingar um þessi atriði, hvorki hvað allsherjar endurskoðun læknaskipunarlaganna liður né hvað gera eigi við læknisbústaðinn í Ögri, þó að ég búist við, að hann verði seldur fyrir það, sem fæst fyrir hann, eins og gert er í svipuðum tilfellum yfirleitt, en mér er ekki um þetta kunnugt. En n. leit svo á, að hvorugt þetta atriði hefði áhrif á afgreiðslu þessa máls. Læknirinn hefur undanfarið setið í Súðavík og það virzt hentugra en að hafa hann í Ögri. Landlæknir telur það stórum mun líklegra, að fást muni læknir, ef læknisbústaðurinn er í Súðavík, en ekki í Ögri. Fleiri upplýsingar hef ég ekki í þessu máli.