14.12.1950
Efri deild: 39. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í B-deild Alþingistíðinda. (2573)
138. mál, virkjun Sogsins
Haraldur Guðmundsson:
Ég vona, að hæstv. forseti hafi ekki skilið orð mín svo, að ég vilji tefja þetta mál. Aðeins finnst mér afgreiðsla þess æði snubbótt. Og það er m.a. ekki algengt í lögum, að veitt sé 100% ábyrgð. Ég er annars engan veginn á móti frv., en bendi á þetta m.a. sem nokkra ástæðu til athugunar. En ég sætti mig við þær upplýsingar, sem gefnar hafa verið af hæstv. forseta um væntanlega meðferð þess.