17.01.1951
Efri deild: 51. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1248 í B-deild Alþingistíðinda. (2577)
138. mál, virkjun Sogsins
Frsm. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Þetta frv. á þskj. 336 er flutt af fjhn. samkv. beiðni hæstv. fjmrh., og fylgdi því engin grg. frá n., þegar það var lagt inn. N. hefur nú athugað frv. á milli umr., og þar sem hér er um að ræða mál, sem er upp á 160 millj. kr., þótti rétt að láta fylgja því nokkurt nál. hér við þessa umr. og þá einnig að birta nokkur fskj., sem n. hefur aflað sér milli umr., þar á meðal samning þann, sem gerður var milli ríkisstj. og bæjarstjórnar Rvíkur um, að Sogsvirkjunin verði sameign þeirra, og enn fremur endurskoðaða áætlun um kostnað og gjaldeyrisþörf við Sogsvirkjunina og enn fremur enn endurskoðaða áætlun um gjaldeyrisþörfina, og er hér um að ræða fskj. I.—III.
Ég vil í upphafi leyfa mér að geta þess, að langeðlilegast hefði verið að bera þetta ekki fram sem viðauka við l. nr. 28 23. apríl 1946, um virkjun Sogsins, heldur sem breyt. við þau l. og fella það inn í l. og prenta þau upp, m.a. vegna þess, að 1. gr. umræddra l. frá 23. apríl 1946 getur ekki lengur staðizt og því ákaflega óviðkunnanlegt að hafa þennan hátt á. En það hefði kostað það, að fjhn. hefði orðið að semja frv. alveg upp, en það vildi hún ekki gera, enda var rekið mikið eftir málinu af hálfu hæstv. ríkisstj. Hefði verið æskilegt, þar sem ekki hafa verið höfð um þetta samráð við hæstv. raforkumálaráðh., að hann hefði sjálfur óskað eftir því. En vegna þess, að það hefur ekki verið gert, og vegna þess, að það er nauðsynlegt að fella í burt 1. gr., þá verður borin fram till. um það frá n., að svo verði gert, og mun ég víkja nánar að því síðar.
N. þótti rétt að kalla til sín á fund þá aðila, sem hafa með Sogsvirkjunina að gera, þ.e. borgarstjórann í Rvík, Gunnar Thoroddsen, svo og skrifstofustjórann fyrir Sogsvirkjuninni og raforkumálastjóra, og mættu þeir allir hjá n. og afhentu henni þau skjöl, sem ég hef þegar minnzt á, nr. I-III, og gáfu auðvitað samþykki sitt til þess, að þau yrðu birt. Þau gefa margar upplýsingar um þetta stóra mál, og þótti mér rétt að láta það koma fram í þskj.
Þegar samþ. voru l. nr. 28 23. apríl 1946, um Sogsvirkjunina, var gert ráð fyrir, að kostnaður við verkið yrði 34 millj. kr. N. hefur ekki tekizt að afla sér upplýsinga um það, hvernig sú áætlun hefur verið, og ekki heldur um það, hvort hér er um nákvæmlega sams konar verk að ræða og það, sem á þeim tíma var áætlað að mundi kosta 34 millj. kr., en nú er gert ráð fyrir að muni kosta 158 millj. Þó hefði verið æskilegt að fá það upplýst hér við þessa umr. frá hæstv. raforkumálaráðh., hvort hér er um sams konar verk að ræða og þessi mismunur stafi þá frá breyttu verðlagi, eða hvort þessi virkjun, sem nú er til umræðu, á að vera allt önnur og víðtækari en sú frá árinu 1946. Um þetta liggja ekki fyrir nein gögn, hvorki í þskj. frá 1946 né hjá fjhn. nú, og hefur hún ekki getað aflað sér þeirra og viljað tefja málið með því að leita frekar eftir þeim. En mér skilst raunverulega, að hér sé um sams konar verk að ræða, hér sé ekki fyrirhuguð stærri virkjun en 1946, og ætti þá að vera hér aðeins um að ræða verðhækkun á verkinu, sem nemi 124 millj. kr. En sjálfsagt getur hæstv. ráðh. upplýst þetta við umr. Hins vegar lá fyrir n. áætlun, sem gerð var 30. okt. 1950, og sú áætlun telur, að kostnaðurinn sé þá 139,5 millj. kr. Ég skal ekki fara frekar út í sundurliðun á þeirri áætlun, þm. geta kynnt sér hana á fskj., en þessi áætlun hefur verið endurskoðuð, og nú er talið, að kostnaðurinn verði 158 millj., og þess vegna meðal annars er þetta frv. borið fram, að fá heimild til að taka allt að 158 millj. kr. lán til að standa undir þeim kostnaði. Ég skal ekki fara út í einstaka liði í þessari áætlun, en vísa þar um til fskj., en ég vil í sambandi við þetta benda á annað atriði. Í l. frá 1946 er aðeins gert ráð fyrir, að ríkissjóður ábyrgist allt að 34 millj. kr. og þá ekki yfir 85% af stofnkostnaði. Þegar frv. kom fyrst fram á Alþ. 1946, var ekki ákveðið þetta hámark í frv., en breytt í meðferð þingsins vegna þess, að þetta hámark er ákveðið í raforkul. sjálfum, að ekki er heimilt, að ríkið ábyrgist meira en 85% af stofnkostnaði héraðsrafveitna í landinu. Nú hefur það ákvæði ekki verið tekið upp í þetta frv. á þskj. 336. Ég hreyfði þessu atriði í hv. fjhn., að bæta þessu ákvæði inn, en um það varð nú ekki samkomulag. Það hafði ekki verið sett inn af hæstv. ríkisstj., og meiri hl. n. vildi ekki, eins og hann orðaði það, torvelda framgang málsins, ef um þetta yrði nokkur ágreiningur. Ég hef því sjálfur borið fram brtt. um þetta á þskj. 487, þar sem lagt er til, að á eftir orðunum „erlendum gjaldeyri“ í 1. mgr. komi: þó eigi yfir 85% af stofnkostnaði. — Tel ég, að þessari stefnu ætti að halda, nema menn hugsi sér að marka hér alveg nýja stefnu og ríkissjóði sé ætlað framvegis að ábyrgjast 100% kostnað við héraðsrafveitur. Því var haldið fram í hv. n., að hér væri raunverulega ekki um héraðsrafveitu að ræða, heldur um sjálfstætt fyrirtæki, sem væri sameign ríkisins og Reykjavíkurbæjar. En þó að Rvík eigi 85% í mannvirkinu, eins og nú er, og ríkissjóður aðeins 15% og samþykkt sé, að ríkissjóður eigi rétt á því að auka eign sína í allt að 50% í fyrirtækinu, þá er a.m.k. ekki hægt að flokka þetta fyrirtæki undir neitt annað en héraðsrafveitur. Það er ekki ríkisrafveita, ekki héraðsrafveita ríkisins og getur því ekki fallið undir annan flokk en héraðsrafveitur, og á þess vegna raunverulega í þessu tilfelli að takmarka þetta við 85% ábyrgð. Ég hef minnzt á þetta við borgarstjórann, og taldi hann það ekki skipta verulegu máli, hvort það yrði sett inn eða ekki, en ég tel mjög eðlilegt að setja þetta inn, því að annars væri opin leið að fá breytt þessu ákvæði fyrir aðrar héraðsrafveitur í landinu, og mundi það verða gert, ef þetta yrði samþ. eins og það liggur fyrir á þskj.
Fjhn. þótti rétt, þó að hún vildi ekki fallast á þessa till., að gera nokkrar meginbreyt. við frv., eins og tekið er fram á þskj. 486. Fyrri brtt. er við 1. gr., að fyrir orðin „gagnvart þriðja manni“ í 3. mgr. komi: gagnvart þriðja aðila. — Var n. sammála um, að rétt væri að breyta þessu þannig, og verður sjálfsagt enginn ágreiningur um það. — Þá ber n. einnig sameiginlega fram aðra till., við 2. gr., um að gr. orðist svo: „Lög þessi öðlast þegar gildi, og falla jafnframt úr gildi 1. og 5. gr. laga nr. 28 23. apríl 1946 og önnur ákvæði, er fara í bága við efni þessara laga.“ Þótti rétt að setja þetta inn til þess að taka af öll tvímæli. Í 2. gr. frv., eins og það er nú, er aðeins ætlazt til, að úr gildi falli 5. gr. áðurgreindra laga og önnur ákvæði, er fara í bága við efni þessara laga, og má þá ef til vill einnig segja, að undir það heyri þá einnig 1. gr., en n. þótti rétt að taka þetta skýrt fram í frv., að þessi gr. falli einnig burt, en í henni er kveðið svo á, að Reykjavíkurbær einn eigi stöðina við Ljósafoss, sem ekki verður eftir að lög þessi hafa öðlazt gildi.
Ég sé ekki ástæðu til þess að fara frekar út í þetta stóra mál hér. Þó að vísu væri nægilegt tilefni til að ræða hin ýmsu atriði í áætluninni, þá sé ég ekki ástæðu til að vera að því nú. Mál þetta er undir ákveðinni stjórn, þar sem ríkisstj. hefur sína fulltrúa og bæjarstj. einnig, og þeim hefur verið falið að framkvæma þessi atriði á ábyrgð þessara tveggja aðila, og hæstv. ríkisstj. hefur að sjálfsögðu alltaf tækifæri til þess að hafa fullt eftirlit með þeim málum. Það mundi því ekki breyta verulegu, þó að farið yrði að gagnrýna hér ýmis atriði í áætluninni eða deila um þau, og skal ég alveg ganga fram hjá því. En ég legg allmikla áherzlu á, að brtt. mín á þskj. 487 um það að takmarka sig við 85 % verði samþ., vegna þess meðal annars, að að öðrum kosti mundi ég telja óhjákvæmilegt að taka upp breyt. á sjálfum raforkul. og láta aðrar héraðsrafveitur í landinu njóta sömu hlunninda, ef takmarkið er ekki sett samkv. minni brtt.
Ég skal svo ekki ræða þetta nánar. Fjhn. öll stendur að því, að gerðar séu þær breyt., sem koma fram á þskj. 486, og leggur til, að frv. verði samþ. þannig, en auk þess legg ég sem sagt til, að brtt. mín á þskj. 487 verði einnig samþykkt.