22.01.1951
Efri deild: 53. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1281 í B-deild Alþingistíðinda. (2701)

156. mál, almannatryggingar

Páll Zóphóníasson:

Herra forseti. Mér er ákaflega illa við að láta tryggingarnar fá rétt til þeirra útsvara, sem hreppsfélögin fá fyrst greidd, og þær geti þannig tekið fé af sveitarfélögunum á mjög óheppilegum tíma, en læt samt vera með það, þó mér þætti ákaflega gott að fá það í burtu, en ef það endilega á að vera, þá held ég, að ekki geti staðizt að leggja hald á ákveðinn hluta útsvaranna, því þau innheimtast aldrei öll. Það verður að vera ákveðið „margin“ til að hlaupa upp á. Það þarf ekki að vera hátt, svona 2–4%, en eitthvað verður það að vera. Ég vildi a.m.k. vona, að þessi leið verði farin.