01.03.1951
Neðri deild: 76. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1325 í B-deild Alþingistíðinda. (2741)

156. mál, almannatryggingar

Pétur Ottesen:

Ég hef nú fengið yfirlýst hjá hæstv. forsrh., sem á að framkvæma efni þessara laga, að hann er í aðalafriðum sammála mér um þann skilning á upphafi greinarinnar, sem ég hélt fram. Hins vegar hefur hv. 7. þm. Reykv., sem er lögfræðingur, skýrt frá, eftir hvaða sjónarmiði hann sem lögfræðingur mundi túlka þetta ákvæði, ef til hans kasta kæmi að skera þar úr, og fellur sá úrskurður á annan veg en þann, sem hæstv. forsrh. og ég höfum haldið fram. Skal ég ekki deila við hv. þm. um þetta, þó að ég hins vegar samkv. venjum málsins vildi styðja mína skoðun á þessu, eða undirbyggja hana á þann hátt, sem ég gerði.

Ég skal svo aðeins til viðbótar því, sem ég sagði áðan, beina því til hæstv. forsrh., að það mundi ekki eiga alls staðar við að haga framkvæmdum á þessu eins og ákveðið er í lagagreininni, þar sem talað er um, að hald skuli lagt á þessa ákveðnu upphæð og hluti af útsvörunum greiðast innheimtumönnum ríkissjóðs, þegar þau falla í gjalddaga, og útsvörin innheimt mánaðarlega eða ársfjórðungslega. Það er mjög algengt í minni sveitarfélögum, að útsvörin greiðist ekki fyrr en liðið er nokkuð á árið, oft ekkert að ráði fyrr en eftir mitt ár og enn seinna, og verður hæstv. forsrh. í framkvæmd þessa máls að sjá svo um, að innheimtu sé hagað í samræmi við þær venjur, sem gilda á hverjum stað, og í samræmi við þær ástæður, sem fyrir hendi eru hvað þetta snertir, og efast ég ekkert um, að svo verði gert.

Ég skal svo ekki deila meira um þetta, en með tilliti til þess skilnings, sem hæstv. forsrh. hefur lýst á framkvæmd þessa máls, sé ég fyrir mitt leyti ekki ástæðu til að rísa gegn þessum ákvæðum, því að það er algengt, og ég held nokkuð föst regla um framkvæmd ýmissa mála í stjórnarráðinu, að sá grundvöllur, sem upphaflega er lagður í framkvæmd vissra mála þar, er látinn gilda og eftir honum farið, þó svo að ráðherra skipti verði. Það er því nokkuð mikil trygging í þeirri yfirlýsingu, sem hæstv. forsrh. gaf um skilning sinn á framkvæmd þessarar greinar laganna, ef til þess ráðs þarf að grípa, sem vonandi er að ekki þurfi, þá verði þeim reglum fylgt í framtíðinni, sem hann setur núna.