16.11.1950
Neðri deild: 22. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í B-deild Alþingistíðinda. (275)

28. mál, Stýrimannaskólinn

Gísli Guðmundsson:

Herra forseti. Þar sem hv. frsm. sjútvn. er fjarverandi, vil ég skýra frá, að sjútvn. hefur haft frv. þetta til athugunar og hefur orðið sammála um að samþ. það með einni breytingu, þess efnis, að 5. gr. frv. falli niður, en hún var þess efnis, að bætt skyldi við einum föstum kennara við stýrimannaskólann. Eftir að hafa athugað þetta og rætt við skólastjórann, leit nefndin svo á, að ekki bæri nauðsyn til að festa embætti þetta í lögum, þar sem þegar er séð fyrir þessari kennslu. Annars er meginefni frv. að breyta kennslu stýrimannaskólans samkv. tillögum þeirra manna, er þar starfa, og leggur nefndin til, að það verði samþ. með þeirri breytingu, er áður getur.