05.02.1951
Efri deild: 64. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 5 í C-deild Alþingistíðinda. (2913)
97. mál, tollskrá o.fl.
Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):
Herra forseti. Ég mun ekki ræða málið frekar, því að — eins og ég sagði áðan — það er ákaflega erfitt að ræða nokkurt mál við hv. 6. landsk. þm. En ég vil mótmæla þeim ummælum hans, að það sé ekki hægt að búast við, að meiri hl. n. hafi mikinn skilning á menningarmálum. Ég er að vísu ekki óvanur að heyra slík ummæli í minn garð frá hv. 6. landsk. þm., en ég vil sérstaklega mótmæla þessu vegna samstarfsmanna minna í n. Og úr því að ég stóð upp, vil ég benda á, hve hv. 6. landsk. þm. veit sáralítið um þessi efni. Hann talaði um, hve tollarnir mundu hækka mikið, ef hljóðfæri yrðu flutt inn fyrir útvegsmannagjaldeyri, en veit hv. þm. ekki, að það má aðeins reikna verðtoll og aðra tolla af innkaupsverði vörunnar á gildandi gengi í landinu? — Þá vil ég mótmæla því, að það hafi verið sjónarmið meiri hl. að tryggja peningamönnum, að þeir geti keypt sér þessa hluti. Þetta eru ekkert annað en sleggjudómar, sem hafa ekki við nein rök að styðjast. Meiri hl. hefur fært fullkomin rök fyrir afgreiðslu sinni á málinu á þá leið að leggja til, að frv. verði fellt á þessu stigi. Og ég held, að það sé ekki verk n. að leita að ákveðnum vörutegundum til þess að vega upp á móti, ef tollur yrði felldur niður af hljóðfærum. Annað en það, sem kom beint fram í frv., var ekki til umr. í n., og út frá því tók hún sína afstöðu, en ekki öðru.