20.02.1951
Neðri deild: 72. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 13 í C-deild Alþingistíðinda. (2933)
161. mál, hraðfrystihús og útflutningsgjald af sjávarafurðum
Frsm. minni hl. (Lúðvík Jósefsson):
Herra forseti. Frv. það, sem hér liggur fyrir, er flutt af 3 nm. úr sjútvn., en við hinir 2 nm. í sjútvn. gátum ekki fallizt á frv. og leggjum fram sérstakt nál. um frv. og leggjum þar til, að það verði fellt. Ég gat ekki verið viðstaddur 2. umr. málsins, en mun nú skýra afstöðu mína til þessa máls.
Í aðalatriðum er það, sem hér er verið að leggja til, að hækka útflutningsgjald af saltfiski um 1½%. Ég hygg, eftir þessa árs útflutningi, að þessi hækkun muni nema um 2¼ millj. kr. Útfluttur saltfiskur af framleiðslu síðastliðins árs mun nema um 150 millj. kr., og er augljóst, að þetta muni verða allþungt álag á útflytjendur saltfisks. Nú liggur það fyrir, að framleiðslan gengur þannig, að flestir, sem tóku þátt í henni, bera sig illa og kunnugt er um kröfur frá saltfisksframleiðendum um uppbætur frá ríkinu. Mér sýnist því skjóta nokkuð skökku við og vera nokkuð hæpinn grundvöllur fyrir því að leggja þann skatt á þessa framleiðendur, sem frv. fer fram á, þegar fyrir liggur vitneskja um það, að útkoman hjá þeim er erfið.
Tilgangurinn með frv. er efalaust góður. Það er gert ráð fyrir, að það fé, sem þannig innheimtist, verði notað til þess að lána til þeirra frystihúsa, sem ekki hafa notið lána úr stofnlánadeild. Þau frystihús, sem vantar stofnlán, eru að vísu mörg, en þó virðist hæpið að taka af tekjum saltfisksframleiðenda, sem vitað er að eru illa staddir, ekki sízt þegar það er vitað, að Alþingi hefur gert nokkra úrlausn fyrir þessi hús. Á fjárl. er gert ráð fyrir, að ríkið veiti ábyrgð fyrir allt að 5 millj. kr. láni handa þessum húsum, fyrir utan það, að vitað er, að fiskveiðasjóður hefur árlega nokkrar tekjur af útflutningsgjöldum af hraðfrystum fiski, svo að það virðist, að hag þessara hraðfrystihúsa sé að miklu leyti borgið, án þess að grípa þurfi til þess að hækka útflutningsgjald af saltfiski. Ég vil geta þess í þessu sambandi, að stjórn S. Í. F. hefur sent n. bréf, sem barst henni að vísu eftir að n. hafði afgr. málið. Þar mælir stjórn S. Í. F. á móti því, að þetta frv. verði samþ., og gerir einnig grein fyrir því, að forsendurnar fyrir þessu frv. séu rangar, en í upphafi grg. fyrir frv. þessu stendur, að samkvæmt ákvæðum gildandi laga sé saltfiskur nú undanþeginn útflutningsgjaldi, en það er rangt, þar sem útflutningsgjald af bátafiski nemur nú 1.35% og af togarafiski 0.85%. Og sundurliðast það þannig af bátafiski:
Útflutningsgjald .............¼%
Fiskimálasjóðsgjald ........½%
Útflutningsleyfisgjald ......1%
Hlutatryggingasjóðsgjald ..½%
Samtals 1.35 %
Af útfluttum togarafiski sundurliðast það þannig:
Útflutningsgjald ..........¼%
Fiskimálasjóðsgjald ........½%
Útflutningsleyfisgjald ......1%
Samtals 0.85 %
Eins og af þessu sést, er það rangt, sem sagt er í grg., að saltfiskur sé undanþeginn útflutningsgjaldi, en hitt er rétt, að gjald þetta er lægra en af frosnum fiski. Ég vil benda á það, að eðlilegra hefði verið til að mæta vandamálum þeirra hraðfrystihúsa, sem hafa ekki fengið stofnlán, að stofnlánadeildin, sem ætlað var að annast slík lán, hefði fengið að halda sínu upphaflega stofnfé, en þyrfti ekki að ganga inn í sig með því að skila því fé, sem hún fær endurgreitt, jafnóðum til Landsbankans. Ég hygg, að togaraflotinn greiði árlega um 5 millj. kr. í afborganir til stofnlánadeildarinnar. Ég held því, ef þessar afborganir hefðu fengið að vera áfram í stofnlánadeildinni, að þær mundu hafa nægt til að annast þessi lán til hraðfrystihúsanna, en nú er þessu fé, jafnóðum og það kemur inn, skilað til Landsbankans, og eftir nokkur ár mun stofnlánadeildin hverfa úr sögunni. Það hefði því verið nær að sameinast um, að stofnlánadeildin fengi að halda því fé, sem til hennar var lagt, og lána það síðan út, m. a. til þessara hraðfrystihúsa, heldur en að leggja álögur og þær allþungar á saltfisksframleiðendur, sem þegar eiga í vök að verjast, að framleiðsla þeirra beri sig. Það er því augljóst, að verði þetta samþ., þá verður gjald af saltfisksframleiðslunni um leið hækkað verulega, og það væri þá eins og annað hér, að verið væri að leggja nýjar álögur á þessa atvinnugrein, á sama tíma og reynt er að finna leiðir til að styrkja hana. Ég held því, að þetta eigi ekki að ná fram að ganga eins og málum er nú háttað, og ég held, að mótmæli þau, sem fram hafa komið, m. a. frá S. Í. F., verði til þess, að hv. þm. athugi málið vel, áður en þeir leggja þennan skatt á saltfisksframleiðsluna í landinu.