15.01.1951
Efri deild: 49. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 43 í C-deild Alþingistíðinda. (3002)
38. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Frsm. 1. minni hl. (Gísli Jónsson) [frh.] :
Herra forseti. Það gafst ekki tími til að afgreiða þetta mál hér fyrir jólafríið, og mér gafst þá heldur ekki tími til að ljúka minni ræðu í sambandi við brtt. mínar. Ég benti þá á, að tilgangur skattal. frá 1921 með að leggja skattbyrðina á þegnana eftir því, hversu færir þeir væru um að bera hana, hefði gersamlega brugðizt, og færði fyrir því glögg rök. Ég hafði einnig fært rök fyrir því, hversu menn hefðu algerlega virt að vettugi öll viðurlög í sambandi við brot á skattal. og hversu skattsvik væru orðin almenn í landinu. Ég hafði enn fremur bent á, að l. um eignakönnunina frá 1947 hefðu verið skýlausasta viðurkenningin, sem hægt hefði verið að fá frá Alþ. um að skattal. væru óréttlát og ættu ekki rétt á sér eins og þau væru nú og að allt þetta hlyti að skapa takmarkalaust virðingarleysi fyrir l. Þess vegna væru þetta nægilegar ástæður til þess að afnema l., þótt ekki kæmi annað eða meira til. Ég hafði fært glögg rök fyrir öllu þessu í fyrri helmingi ræðu minnar og skal ekki frekar endurtaka þau.
En það er ýmislegt fleira, sem styður þá skoðun mína, að afnema eigi tekju- og eignarskattsh frá 1935, og mun ég hér benda á nokkur atriði.
Ein þýðingarmesta ástæðan fyrir því, að sjálfsagt er að fella skattal. úr gildi, er sú, að hvert það fyrirtæki, sem rekur áhættusaman atvinnurekstur í landinu, ber í sér dauðann undir ákvæðum skattal. Hann kemur fyrr eða síðar og er óumflýjanlegur, svo framarlega sem slíku fyrirtæki tekst ekki á einn eða annan hátt að sniðganga l. eða hefur ekki verið gefin skattfríðindi. Það er ekki aðeins skoðun almennings í landinu, að svona er þessum málum komið, heldur hefur þetta einnig verið viðurkennt af Alþ. með því að gefa vissum fyrirtækjum skattfríðindi, svo sem Eimskipafélagi Íslands. Það hefur þótt nauðsynlegt að gefa því félagi skattfrelsi, því að á annan hátt hefði það ekki verið fært um að inna af hendi þá þjónustu, sem því hefur verið falin. Það voru að vísu nokkrir menn, sem héldu uppi togstreitu um það, að ekki væri eðlilegt, að félagið nyti skattfrelsis, en þó hefur það ekki gengið lengra en það, að þeir álitu, að skatturinn, sem félagið á að greiða, eigi að vera kyrr í félaginu sjálfu sem rekstrarfé, og þeir hafa ekki treyst sér til að halda fram, að félagið gæti starfað undir skattal. — Það sama er að segja um útgerðarfélögin. Í sambandi við breyt. á skattal. 1941 átti Alþ. ekki kost á nema öðru af tvennu, að samþ. verulegar breyt. á l. vegna útgerðarfélaganna eða sjá allan þann atvinnurekstur fara í rústir. Þá var komið svo fyrir sjávarútveginum, að hann gat ekki starfað undir skattal. frá 1921, og var því farið inn á þá braut að leyfa frádrátt af þriðjungi tekna til þess að leggja í sérstakan sjóð, sem væri skattfrjáls, auk þess sem ekki skyldi taka skatt af því fé, sem þyrfti til að greiða áfallnar skuldir. Er þetta enn ein sönnun fyrir því, að slík fyrirtæki, sem ég hef minnzt á, geta ekki starfað undir skattal. eins og þau eru, og að Alþ. hefur séð þá hættu, sem því fylgdi að beita skattal. í sambandi við þessa starfsemi. Enn fremur hefur þótt nauðsynlegt að gefa samvinnufélögum sérstök fríðindi, þannig að gildandi skattaákvæði um einstaklinga og einstaklingsfyrirtæki eru ekki látin ná á sama hátt til samvinnufélaga. Það hefur með öðrum orðum verið viðurkennt oftar en einu sinni hér á Alþ., að fyrirtæki, sem eigi að inna af hendi þjóðholla starfsemi, geti ekki staðizt þau áföll, sem alltaf hljóta að koma fyrir í sambandi við slíkan rekstur, svo framarlega sem á að beita að fullu ákvæðum skattal. við þau. Hve mikið hefur verið vikið frá skattal., hefur verið komið undir því, hversu margir menn á Alþ. hafa talið þennan eða hinn atvinnureksturinn vera þjóðhollari en annan atvinnurekstur í landinu. Það hefur alltaf verið meiri hl. Alþ. því fylgjandi, að samvinnufélagsskapurinn sé það þjóðhollur, að hann eigi að njóta skattfríðinda, og skal ég ekki fara út í, hvort það sé rétt eða rangt. Meiri hl. Alþ. hefur líka talið, að Eimskipafélagið eigi að njóta skattfrelsis og að útgerðarfélögin þurfi að njóta fríðinda í þessum efnum, ef þau eigi að geta staðið undir sínum rekstri og innt af hendi þá starfsemi, sem þeim er ætluð. Þegar svo er komið, að þessi yfirlýsing liggur fyrir frá mörgum þingum, er langeðlilegast að afnema skattal., því að ef það er lífsskilyrði fyrir þau fyrirtæki, sem ég hef minnzt á, að vera undanþegin skattal., þá er það engu síður lífsskilyrði fyrir einstaklinga og annan atvinnurekstur, þótt hann sé ekki byggður upp á samvinnufélagsgrundvelli. Ég vil benda á, að enginn hefur treyst sér til að halda fram, að það ætti að öllu leyti að beita ákvæðum skattal. við Eimskipafélagið eins og einstaklinga, heldur hefur það verið álitið eðlilegt, að félagið fengi að halda því fé, sem það annars ætti að greiða í skatta, í sinni starfrækslu. Mín skoðun er sú, að Eimskipafélagið hafi óbeinlínis greitt miklu meiri skatta í ríkissjóð heldur en ef það hefði orðið að lúta skattal. eins og aðrir. Í sambandi við hinn öra vöxt, sem hefur verið í félaginu frá stofnun, hefur það getað leyst af hendi svo mörg verkefni, sem heimtar aukinn vinnukraft, en frá því fólki hafa svo komið vaxandi skattar í ríkissjóð, og af hinni miklu umsetningu félagsins hafa því áreiðanlega komið miklu stærri upphæðir til ríkissjóðs heldur en ef skattal. hefði verið beitt gegn því eins og öðrum skattþegnum í landinu. Það er því óhætt að fullyrða, að ef skattal. verða afnumin, hleypur slíkur vöxtur í allt framtak og framkvæmdir í landinu og viðhorf almennings til atvinnumálanna gerbreytist. Sú staðreynd er nú fyrir hendi, að sérhver aðili, sem rekur víðtæka starfsemi í þessu landi undir ákvæðum skattal., er í raun og veru að vinna fyrir aðra en sjálfan sig, sumpart fyrir ríkissjóð, sem leggur á þá svo þungar skattbyrðar, og sumpart fyrir bankana, sem taka stórar upphæðir í vexti af lánum, en þegar fyrirtæki geta ekki byggt sig upp fjárhagslega, neyðast þau til að leita til bankanna um allt rekstrarfé, þar sem þeim er gert ómögulegt að leggja nokkurn arð til hliðar, sem kann að verða af rekstrinum, því að hann er allur hrifsaður í skatta. Það er ekki nýtt, að fyrirtæki, t. d. sem heldur úti einum togara, þurfi árlega að greiða 100 þús. kr. í vexti til bankanna. Þetta fé lægi kyrrt hjá félaginu, ef því væri leyft að byggja upp sjóði sína, og þá þyrfti það ekki að leita til bankanna, eins og nú er orðin raunin á með Eimskipafélagið, sem jafnvel hefur getað lánað ríkissjóði fé, þegar honum hefur legið á. Sama hefur sýnt sig með S. Í. S., að slíkur stanzlaus vöxtur hefur hlaupið í verzlun þess, og er ekki nema gott eitt um það að segja, einmitt vegna þess, að það hefur búið við önnur skattákvæði en önnur fyrirtæki í landinu. Það er sjáanlegt, að ef felldur yrði niður tekju- og eignarskattur, þá hlypi slíkur vöxtur í fyrirtæki landsins, að ríkissjóður fengi miklu meiri tekjur í tollum og umsetningarsköttum en hann missir við niðurfelling þeirra.
Ég skal nú fara nokkru nánar út í þetta og sýna fram á með tölum, hvern hag afnám skattalaganna hefði í för með sér. — Árið 1921, sem er síðasta árið sem tekju- og eignarskattur er innheimtur eftir skattalögunum frá 1917, nemur hann 6,2% af heildartekjum ríkissjóðs, en á næsta ári og allt til 1934 verður hann lægstur 5,5% 1927, en hæstur 13% 1925, og árið 1934 er hann 10,5%. Á þessu tímabili frá '22–34 er tekjuskattstiginn þannig, að 1% er greitt af tekjum undir 1000 kr., 14% af 50 þús. og 15% af 100 þús. og þar yfir. Þá var því haldið fram, að hann væri ekki nógu hár að hundraðshluta. Frádráttur var þá leyfður 300 kr. fyrir barn, 500 kr. fyrir einstakling og 1000 kr. fyrir hjón, og auk þess var leyfilegt að draga frá alla greidda skatta á árinu. Árið 1935 er skattstiganum breytt, því mönnum þótti eigi nógu stór hundraðshluti ríkissjóðs af þessum sköttum. Þá skyldi greiða 40% af 50 þús. kr. tekjum eða meira. Frádráttur fyrir barn er þá hækkaður í 500 kr., einstakling 800 kr. og hjón 1500 kr. Eignarskatturinn er hækkaður í 10 úr 7. Greiddir skattar á árinu eru þá einnig frádráttarhæfir. Síðan er lagt 10% ofan á skattupphæðina. Þetta er allveruleg hækkun, og mönnum sýndist svo, að nú hlyti hundraðshluti ríkissjóðs að vaxa verulega. En hvað skeður? Þrátt fyrir þessa hækkun hækkar hundraðshluti ríkissjóðs svo að segja ekki neitt, því á árunum 1935–1939, sem þessi skattstigi gildir, nemur tekju- og eignarskatturinn frá 9,3%, eins og hann verður lægstur 1937, til 11,9%, eins og hann verður hæstur 1935. Þetta eru athyglisverðar tölur. Þótt tekju- og eignarskatturinn sé hækkaður, þá hækkar samt ekki hundraðshluti ríkissjóðs, og er þetta alvarleg sönnun þess, að þetta er ranglátur skattstigi og enginn vafi, að breyta á þessu fyrirkomulagi. Þetta eru talandi tölur, sem ekki er hægt að bera brigður á, og sýna ótvírætt, að við erum á rangri braut.
Árið 1940 er skattstiganum enn breytt, því mönnum þótti hundraðshluti ríkissjóðs enn ekki nógu hár, og fundnar nýjar leiðir til þess að hækka hann, en vitanlega fólust þær aðeins í því að fara enn dýpra ofan í vasa skattþegnanna í landinu. Þá er skylt að greiða 44% af 28 þús. kr. og þar yfir og auk þess 12% álag þar ofan á, en þrátt fyrir þessa gífurlegu hækkun fer hundraðshlutinn niður í 9,8% úr 10,6%, eins og hann var árið áður.
Árið 1941 er enn hugsað, hvernig eigi að laga þetta, og þá er sú breyting gerð á skattalögunum, að tekju- og eignarskatturinn skv. skattal. frá 1935 er hækkaður um 10%, en auk þess er lagður á stríðsgróðaskattur á tekjur yfir 50 þús., sem nemur 4–35%. Við þetta hækkar hundraðshlutinn upp í 21,4%. Þetta ár er fylgt sömu frádráttarreglum og áður.
Árið 1942 er enn gerð breyt. á skattalögunum. Þá var skattstiginn lækkaður þannig, að 22% er greitt af 50 þús. og yfir, en samtímis fellt niður, að draga megi frá greidda skatta á árinu, svo þetta er í rauninni stórkostleg hækkun á tekjuskattinum. Þá eru einnig ákveðin sérstök fríðindi til hlutafélaga og samvinnufélaga. Þessi fríðindi voru gefin vegna þess, að þessi fyrirtæki voru komin í kröggur, og þess vegna farin sú leið að gefa eftir af skattinum, og er ekki nema gott eitt um það að segja. Þá voru og teknar upp sérstakar reglur um útreikning á skattskyldum lágtekjum, en til viðbótar var svo stríðsgróðaskattinum breytt þannig, að lagt var frá 3–68% á tekjur frá 45 þús. og þar yfir. Nú skyldi maður ætla, að slík fjártaka hækkaði stórkostlega hundraðshluta teknanna, en það undarlega skeður, að hann hækkar aðeins um 2,4% þ. á., eða í 23,6%.
Árið 1943 kemur svo verðlækkunarskatturinn, sem nemur frá 4–18% á allar tekjur yfir 200 þús., og hækkar þá hundraðshlutinn upp í 25,7%, enda fer þá saman þessi gífurlega fjártaka ríkissjóðs og óhemjulegar verðbreytingar og gróðaár, en samt hækkar hundraðshlutinn ekki meira en þetta. Þessi skattaákvæði hafa staðið óbreytt síðan, en hundraðshlutinn alltaf farið minnkandi og var 1949 kominn í 17,4%. Þetta er enn ein sönnun þess, að við erum á rangri leið. Samkv. fjárlögum yfirstandandi árs er hann áætlaður 14%, svo hraðminnkandi hefur hann farið undanfarið, en álitið er, að hann nái ekki einu sinni þeirri upphæð. — Samkvæmt fjárlfrv. fyrir 1951 er hann áætlaður 12,6%. Fjvn. átti tal við hæstv. fjmrh. um það, hvort ekki mætti hækka þessa áætlun verulega, en fékk það svar, að það væri algerlega óverjandi að láta sér detta í hug að hækka þá áætlun, því þegar væri búið að ganga svo nærri skattþegnum í landinu. Þessi yfirlýsing lá fyrir frá hæstv. ráðh., svo n. reiknaði með 12,6%.
Samkv. ríkisreikningunum hefur tekju- og eignarskattur ásamt stríðsgróðaskatti, verðlækkunarskatti og öllu álagi numið 13,6% af tekjum ríkissjóðs að meðaltali á árunum 1922–'41, og hafa þó á þessum árum verið sex veltiár, sem hækkar hundraðshlutann verulega. Það er því ljóst, að þetta er ekki megintekjustofn ríkissjóðs, því 86,4% hafa komið eftir öðrum leiðum og kostnaðarminni við innheimtu. Þetta er ein ástæðan til þess, að það ber að afnema skattal. í heild.
Samkv. fjárlagafrv. fyrir 1951 eru tekjur ríkissjóðs af tekju- og eignarskatti og stríðsgróðaskatti áætlaðar alls 36 millj. 250 þús. kr. Hæstv. fjmrh. mótmælti því að hækka þessa áætlun og taldi stefnt í beinan voða, ef það væri gert. Eftir því, sem bezt verður séð af ríkisreikningunum 1949, fjárlögum 1950 og fjárlagafrv. 1951, er heildarkostnaður við álagningu og innheimtu þessara skatta rúmlega 6 millj. kr. við að innheimta 36 millj. Þessi upphæð sparast öll, ef skattalögin eru numin úr gildi. Þeir menn, sem hafa verið að fárast út af því, hvað það kostar að innheimta iðgjöld ríkisútvarpsins, kunna að hrökkva við nú og verða undrandi, þegar þeir sjá, hvað innheimtan á þessu kostar. Reikna má með, að rúmlega þúsund menn vinni við álagningu og innheimtu þessara skatta. Þarna eru teknir þúsund menn út úr atvinnulífinu til þess að innheimta þennan ranglátasta og vitlausasta skatt, sem til er, skatt, sem viðurkennt er, að muni drepa hvert fyrirtæki, sem áhætturekstur rekur — og það gera öll fyrirtæki hér á landi — og ekki hefur komið sér undan skattaákvæðunum löglega eða ólöglega.
Væri þetta fólk sett í framleiðsluna, mundi koma í ríkissjóð talsverður hluti þess, sem hann tapaði á því, að skattalögin væru afnumin. Það mun láta nærri, að þetta fólk geti unnið til útflutnings verðmæti, sem nemur um 15 millj. kr. árlega, og af því fengi ríkissjóður töluverðan hluta í tollum og innflutningsgjöldum. (VH: Eru skattanefndarmenn taldir með í þessum þúsund mönnum?) Já. (Forseti: Það er nú aðeins aukastarf, sem stendur yfir fáa daga.) Það er alveg sama, hvort þeir sitja í fáa daga eða marga, þeir gera ekki annað á meðan. Það eru staðreyndir, sem ekki er hægt að mótmæla, að upphæð sú, sem fer til innheimtunnar, svarar til launa rúmlega 1000 manna. Ég veit, að hæstv. forseti undrast þetta, en þetta eru upplýsingar, sem eru staðreyndir. Það er því að sjálfsögðu skylt og rétt að hreyta þessu kerfi. Með því að gera ráð fyrir óbreyttu toll- og veltuskattskerfinu, þá mundu koma í ríkissjóð meiri tekjur en tapast með afnámi tekju- og eignarskattslaganna. Hins vegar álít ég, að ef þetta verður ekki nægilegt, þá beri að breyta tolllögunum og breyta þeim þannig, að hærri tollar verði greiddir af þeim vörutegundum, sem ekki geta talizt nauðsynjar og keyptar eru aðeins af þeim mönnum, sem hafa efni á því. Þetta kerfi er í Englandi. Þar greiða menn 100–200% tolla af ýmsum munaðarvörum. Slíkt fyrirkomulag er miklu heppilegra. Þá greiða menn af frjálsum vilja tolla í ríkissjóð fyrir þær vörur, sem menn vilja njóta. Ef menn t. d. vilja kaupa pels eða gimsteina eða eitthvað slíkt, þá geta menn fengið það, en greiði um leið ca. 80% af andvirðinu í ríkissjóð. Með þessu er tryggt, að ríkissjóður fái sínar tekjur og meira en hann missir með afnámi skattalaganna.
Þá skal enn fremur bent á, að við afnám skattalaganna yrði einnig nauðsynlegt að endurskoða launalögin. Þau geta ekki staðið óbreytt um leið og launþegar fá skattfrelsi. Ég er sannfærður um það, að ef embættismenn ríkisins hefðu mátt velja í fyrra um hækkun launanna um 20% eða skattfrelsi, að þá hefðu þeir valið skattfrelsið. Ég er viss um, að ef skattalögin eru afnumin, þá sparast a. m. k. 10–15 millj. kr. í launagreiðslum í landinu, jafnvel meira. Að sjálfsögðu er ekki hægt að breyta skattakerfinu fyrirvaralaust, og er því gert ráð fyrir, að ríkisstj. fái 1 ár til undirbúnings þessu máli, og ætti það að vera nægur tími til leiðréttingar á 1. og annarra ráðstafana í sambandi við þetta mál.
Á erfiðum tímum er afkoma landsins komin undir því, hversu margir fjársterkir einstaklingar og félög eru til í landinu. Þegar erfiðir tímar koma yfir fátæka þjóð, á hún sér fá úrræði og því bezt hún sé ekki fátæk, heldur geti staðið undir erfiðleikunum án aðstoðar ríkisins, en til þess þurfa menn að hafa löngun og aðstöðu til þess að afla tekna í góðærum, sem hægt er að leggja í varasjóð, en með núgildandi skattalögum er það ekki hægt. Ég vil taka það fram, að það er fullt samræmi í þeirri afstöðu minni, að ég vil fella niður skattalögin og einnig að arfur falli ekki til útarfa, heldur til Tryggingastofnunar ríkisins.
Afkoma lágtekjumanna er einnig komin undir því, að mikið sé til af fjársterkum einstaklingum, sem geti haldið áfram sínum atvinnurekstri og veitt mönnum atvinnu í slæmum árum. En nú er komið í veg fyrir það með því að þau þurfa alltaf að taka lán hjá bönkunum og greiða þeim stórar fjárhæðir í allt of háa vexti. Það er mikill misskilningur, að skattalöggjöfin bæti afkomu hinna fátækustu í landinu. Þvert á móti eykur hún neyð þeirra. Sú hjálp, sem fátækum er veitt úr sveitarsjóðum, ríkissjóði eða tryggingunum, er smámunir hjá því, sem þeir fá með öruggu atvinnulífi í landinu. Það er lífsnauðsyn, að atvinnufyrirtækin séu svo fjársterk, að þau þurfi hvorki að leita til bankanna né ríkissjóðs í slæmum árum, heldur geti sjálf staðið undir því. Ein sönnun þessa er, að ríkissjóður þurfti að greiða hvorki meira né minna en 30 millj. kr. til þess að halda úti síldveiðiflotanum á síðustu síldarvertíð.
Af öllu þessu, sem ég hef tekið fram, er alveg sýnt, að það er alveg rangt að halda tekjuskattsl. við lýði. Það er hagur fyrir fátæklingana, það er hagur fyrir atvinnurekendur og hagur fyrir ríkissjóð að afnema þau. Ég vil því vænta þess, að brtt. mínar í sambandi við þetta, á þskj. 318, verði samþ., meiri hl. þessarar hv. d. geti fallizt á þau rök, sem ég hef fært fyrir þessu máli, og samþ. brtt. eins og þær liggja fyrir á því þskj.
Mér hefur þótt rétt að láta fylgja þessu nál. mínu yfirlit yfir það, hver hundraðshluti ríkisteknanna af tekju- og eignarskatti, stríðsgróðaskatti og skattauka hefur verið frá 1921 til 1949. Það hefur legið í þessu töluverð vinna, en ég hef ekki séð eftir því að leggja þá vinnu í þetta mál, því að mér er alveg ljóst, að þetta er langstærsta málið, sem nú liggur fyrir Alþingi. Þetta er fyrsta sporið til þess að komast úr því öngþveiti, sem er í þessum málum, að afnema þetta, og þá mun róðurinn verða léttari á komandi árum.