16.01.1951
Efri deild: 50. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 58 í C-deild Alþingistíðinda. (3011)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Frsm. 1. minni hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Ef marka má undirtektir þær, sem till. mín hefur fengið hér í hv. d., þá munu þeir ekki vera margir, sem fylgja henni, og það getur verið, að fleiri séu sama sinnis og hv. frsm. meiri hl., að telja hana skemmtilega fjarstæðu. En það hefur lítið verið gert til að hnekkja rökum mínum, nema þá það, sem hv. 4. þm. Reykv. reyndi til að afsanna þau, heldur hefur því verið slegið fram, að hér sé um skemmtilega fjarstæðu að ræða, en ég vil benda hv. þm. S-Þ. á það, að sum af beztu og þýðingarmestu málum heimsins hafa verið talin skemmtileg fjarstæða, þegar þau hafa komið fram, svo að ég get vei fellt mig við það, að till. mín fái þennan dóm, en eins og ég sagði áðan, þá hefur varla verið gerð nokkur tilraun til að hrekja það, að hér sé ef til vill um að ræða þýðingarmesta málið, sem þetta þing fjallar nú um. Hv. 11. landsk. sagði, að ég hefði rætt of lítið um málið, og felst ef til vill í þeim ummælum hans, að hann telji, að hér sé um þýðingarmikið mál að ræða. Ég vil því þakka honum fyrir ummæli hans, þó að þau séu ekki mjög veigamikil, og má þá ef til vill búast við því, að hann fylgi till. minni, et dagskrártill. hans verður ekki samþ. Hv. 11. landsk. sagði, að engu væri sleppt, þó að málinu væri frestað, en ég vil benda honum á það, að ég tel miklu sleppt, ef dagskrártill. hans verður samþ., og þá verður ekkert gert í málinu og ríkisstj. ekki hvött til að athuga þessi mál, heldur aðeins að verið sé að endurskoða tekju- og eignarskattslögin, eins og segir í dagskrártill., en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Þar sem gera verður ráð fyrir, að milliþinganefnd sú, er nú starfar að endurskoðun tekju- og eignarskattslaganna, leggi tillögur sínar um breytingu á þeim fyrir næsta þing, en breyting sú, er frv. þetta vill gera á þeim lögum, virðist ekki mjög aðkallandi, telur deildin rétt að fresta afgreiðslu málsins efnislega á þessu þingi og tekur því fyrir næsta mál á dagskrá.“ Hér er ekkert ýtt undir, að skilað sé áliti um þetta atriði, og engin stefna mörkuð um það, hverjar þær niðurstöður ættu að vera. Það er því verið að lísa málinu frá með þessari dagskrártill. án nokkurra raka. Út af því atriði, að till. mín sé skemmtileg fjarstæða og að hv. þm. hafi ekki enn getað sett sig inn í það mál eða melt það, sem ég er að koma fram með þar, þá vil ég taka það fram, að ég tel, að ég mundi hafa getað fylgt dagskrártill., ef í henni hefðu falizt tilmæli til mþn. um, að hún athugaði, hvort ekki kæmi til greina að fella skattalögin úr gildi. Ef það hefði verið gert, þá hefði það verið spor í rétta átt, því að þá hefði það verið athugað af fleirum en mér, hvort slíkt væri ekki mögulegt. Ég hef komið fram með ákveðnar till. í þessu máli og athugað það vel, og mér finnst, að hér sé um alvörumál að ræða, sem þarfnist góðrar athugunar. Ég vil því benda hv. 11. landsk. á það, að ef hann breytti till. sinni þannig, að í henni fælist áskorun til hæstv. ríkisstj. um að athuga þetta líka, þá gæti ég hugsað mér að fylgja henni, en ég tel ófært að láta málið afskiptalaust. Út af því, sem komið hefur hér fram við umr., þá sést, að allir eru óánægðir með skattalöggjöfina eins og hún nú er, en allir vilja láta breyta henni þannig, að hún sé þeim og þeirra stétt til hagnaðar, en öðrum til óhagnaðar; ég einn hef borið hér fram till., sem stefnir í þá átt, að þetta komi sem jafnast yfir, og ef mín till. verður samþ., þá verða allir jafnir fyrir lögunum. En Alþýðuflokksmenn vilja draga fram hlut sinna flokksmanna og hv. flm. frv. þess, sem hér er til umr., vill draga fram hlut kvenna, og hefur hann lýst því hér yfir. En það eru meiri ærlegheit í till. minni, og þar er ekki um neina stéttarbaráttu að ræða, heldur gengur hún jafnt yfir alla. Hv. 4. þm. Reykv., sá eini, sem rætt hefur till. mína efnislega, sagði, að aldrei hefði verið meiri hl. fyrir því á Alþ., að meiri hluti ríkisteknanna skyldi tekinn með tekju- og eignarskatti. Ég hef aldrei sagt, að svo hafi verið, en ég hef bent á það, hve sáralítill hluti ríkisteknanna fengist með tekju- og eignarskatti, og að sá hluti hefði farið minnkandi og nú hraðminnkandi. Það er lærdómsríkt að athuga það, að því dýpra sem farið er í vasa skattþegnanna, því minni verður hluti ríkissjóðs. Ég vona því, að aldrei verði á Alþ. meiri hl. fyrir því að taka meiri hluta ríkisteknanna með þessum skatti, því að þá mun hlutur hans enn minnka, og það hefur sýnt sig síðan 1921, og ríkissjóður hefur orðið að fara aðrar leiðir til að afla 85% af tekjum sínum. Varðandi það, sem rætt hefur verið hér um það, hvernig farið skyldi með útsvörin, ef till. mín yrði samþ., þá vil ég taka það fram, að ég skal, þegar búið er að samþ. hana, benda á, hvernig farið skuli með þau, en ég tel tilgangslaust að koma fram með það á meðan ekki kemur fram meira fylgi við till. mína en hér hefur verið, og skal ég því ekki tefja hv. d. á að ræða það frekar. Hv. 4. þm. Reykv. sagði, að í stað þess að afnema tekju- og eignarskattinn, ætti að gera róttækar ráðstafanir til að fyrirbyggja, að menn drægju undan skatti. Hann er sem sagt á sömu línu og Stóridómur, að þyngja refsingar við afbrotum, og er ég hræddur um, að Alþýðublaðið hefði kallað slíkt saltstólpatillögu, ef hún hefði komið frá þm. Barð. Hv. þm. vill ef til vill setja dauðadóm um þetta —, og hvers vegna ber hann þá ekki fram till. um að þyngja viðurlög við skattsvikum? En hann veit vel, að ef ekki væri hægt að skjóta sér undan þeim, þá væru þau afnumin, því að þá væri ekki hægt að lifa undir þeim, og þegar skattdómari fer að hreyfa við þessum málum, þá er embættið lagt niður. Það hefur verið viðurkennt af Alþ., að ekki væri hægt að framkvæma ákvæði þessara laga, bæði með ákvæðum í eignakönnunarlögunum 1947 og með því að leggja niður embætti skattdómara nú fyrir skömmu, svo að hv. 4. þm. Reykv. getur verið rólegur vegna þess, að hans Stóridómur verður alveg áreiðanlega aldrei settur hér í þinginu.

Þá sagði hv. 4. þm. Reykv., að þetta væri að sínum dómi bezta skattheimtuaðferðin, en hann nefndi ekkert, að erfitt væri að innheimta þennan skatt, og ég held aftur á móti, að engin skattheimtuaðferð sé ranglátari og kostnaðarsamari heldur en þessi, og held ég, að það sé sanni nær en fullyrðing hv. 4. þm. Reykv., að aldrei hafi verið fundin hagkvæmari aðferð við innheimtu skatta en þessi.

Þá sagði hv. þm., að þó að hækkað væri álag á luxusvörur, þá mundi það ekki nægja til að vega á móti þessum skatti, en ég vil benda á það, að meiri tekjur munu nást í ríkissjóð með því móti en að skattleggja þegnana á þennan hátt. Það hefur sýnt sig, að hægt er að meira en tvöfalda álög á tóbak og áfengi, og að það er kostnaðarlítið að leggja það á, og það er hægt að taka fleiri vörur, sem eru alveg jafnónauðsynlegar og tóbak og áfengi, og skattleggja þær á sama hátt. Og með því móti má lækka skatta á láglaunamönnum, en það skilst mér, að hv. 4. þm. Reykv. vilji gangast inn á. Ég veit, að það er hægt að lækka skatta á almenningi, en leggja háa skatta á luxusvörur, sem menn mega greiða háa skatta af, ef þeir kæra sig um þær, en er engin lífsnauðsyn að kaupa. — Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða frekar um athugasemdir hv. 4. þm. Reykv. í þessu máli eins og stendur, en skal í þess stað snúa mér að málinu sjálfu.

Ég vil fyrst og fremst benda á það, að mér finnst, að hv. frsm. meiri hl. hafi ekki fellt réttlátan dóm um þetta frv. Ég sé ekki, að það bæti mikið úr ranglætinu í landinu, þó að það verði samþ. Það verður byrjað á því að sniðganga skattalögin í nýrri mynd, og það er auðvelt að sniðganga þau. Hvað halda þau hv. 8. þm. Reykv. og hv. þm. S-Þ. að það verði margar ráðskonur í landinu, þegar búið er að samþ. þetta frv.? Ætli það verði þá lengur nokkur vinnukona til í landinu? Ætli þær verði ekki allar kallaðar ráðskonur? Útkoman yrði því sennilega sú, að þetta mundi ekki eingöngu ná til raunverulegra ráðskvenna, heldur til allrar húshjálpar, svo að þetta mundi ekki bæta úr ranglæti skattalaganna, heldur þvert á móti auka á það. Þá vil ég benda á það, að í brtt. á þskj. 475 er gert ráð fyrir, að upphaf 1. gr. orðist svo: „Nú vinnur kona framteljanda utan heimilis, þó ekki við fyrirtæki hans, og má þá frádráttarbær kostnaður .... Hvernig yrði skilgreiningin á því, hvað væri fyrirtæki framteljanda? Það yrði að vera matsatriði. Þá er hér komin fram brtt. á þskj. 299, sem leggur til, að 1. gr. orðist svo: „Nú vinnur kona framteljanda utan heimilis og hjá öðrum en manni sínum eða fyrirtæki, sem hann er meðeigandi að, og er henni þá heimilt að telja fram sérstaklega til skatts þær tekjur, sem hún hefur af þeirri atvinnu.“

Við skulum t. d. hugsa okkur það réttlæti, sem fram kæmi, ef framteljandi ætti 25 kr. í hlutabréfum Eimskipafélags Íslands. Þá mætti kona hans ekki vinna þar án þess að notfæra sér ekki þessi hlunnindi. Hvaða sanngirni er í þessu? Ef maðurinn ætti kannske kr. 5000 í fyrirtæki eða hann væri forstjóri fyrirtækis, þá teldist hann eiga fyrirtækið. Hvaða sanngirni er þetta? Nei, þessi löggjöf yki mjög á ranglætið í skattalöggjöfinni. — En annað atriði getur vel komið til mála, þ. e. að láta hjón telja fram sitt í hvoru lagi, eins og Alþýðufl.-menn hafa hér svo mjög talað um. En það er bara ekki hægt, eins og lögin eru nú, því að það mundi raska öllu kerfinu. Yrði því að breyta öllu kerfinu fyrst og taka skattalöggjöfina til rækilegrar endurskoðunar, og þá mundi það fara eftir því, hvernig slík breyt. yrði, hvort ég gæti fylgt henni. — Hjónabandið er, eins og hv. frsm. sagði, samfélag um eignir og öflun þeirra, og hér er ekkert sagt um það, að skipta skuli eignarskattinum, heldur aðeins tekjuskattinum. - Annars eru þessi frv. og till. einungis sett fram í auglýsingaskyni og ekkert annað. –Ég heyrði í útvarpinu í gær, að talið væri, að ástæðan fyrir því, hve mörg börn fæðast utan hjónabands, væri vegna skattalaganna. Hví þá ekki að afnema þessa skattalöggjöf? — Og engin fjarstæða væri, að hv. frsm. meiri hl. snúi nú við blaðinu og fylgi mér að málum í þessu efni, eftir að hafa heyrt þetta ágæta útvarpserindi. — Ég skal svo ekki tefja þessa umr. lengur. En ég get ekki stutt hina rökst. dagskrá og enga till. nema þá, sem er á þskj. 318, þótt hún hafi fengið þann dóm að vera skemmtileg fjarstæða.