16.01.1951
Efri deild: 50. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 65 í C-deild Alþingistíðinda. (3017)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Hannibal Valdimarsson:

Herra forseti. Það er að vísu rétt, sem hv. þm. Barð. tók fram, að það er lagt til aftan við grg. á þskj. 318, að l. um tekjuskatt og eignarskatt skuli falla úr gildi þ. 31. des. 1951. Bið ég afsökunar á, að mér skuli hafa skotizt yfir þetta. En þrátt fyrir þetta verður mikið óinnheimt af sköttum um næstu áramót, þótt l. verði þá felld úr gildi. Og það er ekki byggt á misskilningi hjá mér — því að það vita allir —, að till. hv. þm. Barð. eru fram komnar til þess að létta háum sköttum af miklum tekjum og stóreignum. Þá hefur hv. þm. Barð. rætt mikið um það, að undir núverandi skattal. séu skattarnir svo þung byrði á atvinnufyrirtækjum, að annaðhvort liggi þeim við hruni af þeim ástæðum eða geti því aðeins blómgazt, að þau njóti skattfríðinda. Öll þau dæmi, sem hann tók, snerust því um hina fjárhagslega stóru og sterku í þjóðfélaginu, og hefur hann í öllum sínum málflutningi veigrað sér við að ræða þau mismunandi sjónarmið, sem við túlkum í þessu máli, og komst eðlilega að gerólíkri niðurstöðu, en því verður ekki hnekkt, að með þessum till. ber hann fyrir brjósti þá fjárhagslega sterku, sem hafa borið meginþungann af sköttunum, sem mín skoðun er, að þeir eigi að bera með fullum rétti.