22.01.1951
Efri deild: 53. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í C-deild Alþingistíðinda. (3034)
38. mál, tekjuskattur og eignarskattur
Steingrímur Aðalsteinsson:
Herra forseti. Eins og hv. þdm. vafalaust rekur minni til, þá höfum við sósíalistar haldið fram m. a. í sambandi við þetta mál, að sú lausn, sem á því ætti að verða, væri sú, að maður og kona fengju leyfi til þess að telja tekjur sínar fram sitt í hvoru lagi, þó gift væru, eins og hv. 4. þm. Reykv. var nú að tala fyrir í síðustu ræðu sinni. Og á fyrra stigi þessa máls flutti einn af þm. Sósfl. brtt., sem gekk í þá átt, Kristinn Andrésson, sem þá var hér sem varamaður hv. 1. landsk. þm. Nú náði þessi brtt. ekki fram að ganga. Og það virðist vera einsætt, að slík breyt. á þessu frv. fáist ekki hér í þessari hv. d. En þegar svo er komið, tel ég rétt að gera aðra tilraun til að fá lagfæringu á ákvæðinu eins og það nú liggur fyrir í frv. eftir 2. umr. á þskj. 500. Þar er sem sagt gert ráð fyrir því, að kona, sem vinnur utan heimilis, en þó ekki við fyrirtæki eiginmannsins, fái leyfi til að draga frá sameiginlegum tekjum hjónanna það kaup, sem þau sannanlega hafa greitt ráðskonu vegna þessarar vinnu. Hv. 4. þm. Reykv. tók fram áður, og ég get tekið undir hans rök, að því aðeins er þessi frádráttur leyfilegur eins og ákvæðið er nú, að ráðskona hafi verið tekin á heimilið meðan konan stundaði sína atvinnu utan heimilis, en það þýðir hins vegar, að aðeins bezt stæðu framteljendur njóta þessara fríðinda. Þetta kemur ekki að neinu gagni þeim fátæku hjónum, þar sem konan af efnahagsástæðum neyðist til að leita atvinnu út fyrir heimilið, en hefur ekki efni á að halda ráðskonu og verður að bæta erfiðum heimilisstörfum á sig eftir að hún hefur unnið sinn fullkomna vinnudag utan heimilis. Ég tel alveg fráleitt að vera að breyta l. aðeins í slíkt horf; með því sé síður en svo nokkuð unnið gagnvart þeim, sem barizt hafa fyrir breyt. í þessu efni og sérstaklega þurfa á henni að halda. Ég þarf ekki að fara ýtarlega út í þetta, vegna þess að hv. 4. þm. Reykv. ræddi það alveg sérstaklega, en aðeins undirstrika hans rök. Vil ég leyfa mér í framhaldi af því að leggja fram brtt. við 1. gr. frv., svo hljóðandi:
„Við 1. gr. Í stað orðanna „ráðskonu sannanlega eru greidd“ komi: ráðskonum eru greidd á viðkomandi stað.“
Með þessu á ég við það, að ekki þurfi endilega að taka ráðskonu á viðkomandi heimili, heldur sé leyfilegt að taka tillit til þeirra aðstæðna, að konan vinnur utan heimilis, þegar taldar eru fram sameiginlegar tekjur hjóna. Um annað virðist ekki að ræða en að draga frá venjulegt ráðskonukaup, án tillits til þess, hvort ráðskona er tekin á heimilið eða ekki. Enda þótt ég sé engan veginn ánægður með niðurstöðu málsins þannig, teldi ég samt miklu viðunanlegra, ef þessi till. verður samþ., og nokkurt spor í áttina til leiðréttingar á óréttlæti því, að tekjur hjóna koma í hærri skattstiga, ef konan leitar sér tekna utan heimilis. En að fullu verður ekki bætt úr þessu misrétti nema með því að aðgreina framtal hjónanna, eins og við höfum barizt fyrir, að gert yrði. Ég vil mega vænta þess, að hv. þdm. fallist þó á að breyta ákvæðinu í það horf, sem till. mín hermir.