23.01.1951
Efri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í C-deild Alþingistíðinda. (3042)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Mig furðaði satt að segja á því, hvað hv. þm. Barð. var vondur við mig í síðustu ræðu sinni um þetta mál í gær. Venjulega hefur farið heldur vel á með okkur, og ef til vill hefur hann þarna verið að skerpa kærleikann. Hann taldi, að mér bæri að taka aftur orð mín, er ég hafði um álit hans á vissum atriðum, því að ég hefði gert honum upp ummæli, sem hann hefði aldrei sagt. Þetta er hinn mesti misskilningur hjá hv. þm., því að hann sagði, svo að ekki verður um villzt, að afnám tekjuskatts mundi ganga jafnt yfir alla. En það er ekki von, að hann muni allt, sem hann segir, því að hann mun vera háður mannlegum breyzkleika eins og aðrir. En ég vona bara, að það verði enginn misskilningur úr þessu. Nú telur hv. þm., að aðalrökin fyrir brtt. sinni séu þau, að það mundi tvímælalaust verða fátæklingunum fyrir beztu, ef tekjuskatturinn yrði afnuminn. Ég leyfi mér að segja, að hér er aðeins um fullyrðingu að ræða, sem hljómar í mínum eyrum sem hín mesta fjarstæða. — Ég fer svo ekki fleiri orðum um þetta atriði, því að það mun öllum kunnugt um eðii þess, en það, sem olli því, að ég kvaddi mér hér hljóðs núna, var sú fyrirspurn frá hv. þm. Barð. til mín og hv. 11. landsk., hvort ég og hann vildum ekki taka þátt í samningu dagskrártill., sem við allir 3 gætum sameinazt um, en hann lét þess getið um leið, að það væri ekki hægt að ná samkomulagi við sig, nema í þeirri tili. yrði gert ráð fyrir, að rannsókn og undirbúningur færi fram á því að afnema að miklu eða öllu leyti tekjuskattinn. Á þeim grundvelli get ég ekki unnið með þeim að samningu dagskrártill. og hygg því, að óvinnandi sé að reyna samkomulag í þessu efni. Skal ég svo ekki tefja umræðurnar frekar.