23.01.1951
Efri deild: 54. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í C-deild Alþingistíðinda. (3067)

38. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Gísli Jónsson:

Ég greiddi atkv. mitt gegn því að vísa þessu máli til hæstv. ríkisstj. án rökstuðnings, og í þessari till. er enginn rökstuðningur annar en sá, að haldið skuli áfram endurskoðun tekju- og eignarskattslaganna, sem vitað er að eru í endurskoðun, og að koma eigi með till. um sérsköttun manns og konu, og með því að mín till. hefur verið felld og ég get ekki fallizt á þessa, segi ég nei.