26.01.1951
Neðri deild: 56. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í C-deild Alþingistíðinda. (3072)

102. mál, landnám, nýbyggðir og endurbyggingar í sveitum

Frsm. (Jón Sigurðsson):

Herra forseti. Eins og hv. dm. kann að reka minni til, þá gat ég þess við 1. umr. þessa máls, að ég teldi rétt, þar sem hér er um nýmæli að ræða, að hafa þá aðferð, að málið yrði athugað af búnaðarþingi, áður en það hlýtur afgreiðslu á Alþingi. N. sendi líka málið til nýbýlastjórnar ríkisins, og var landnámsstjóra falið að gera grein fyrir afstöðu hennar, sem hann og gerði með bréfi, sem prentað er sem fskj. með nál. Telur stjórnin þörf á lagaákvæðum, sem tryggi betur en nú er, að jarðir lendi ekki í braski og fari þannig máske í eyði. En að undanfarinni athugun, þá telur hún sig ekki geta bent á betri ráð til þess en gert er í frv., en telur rétt, að það komi til athugunar búnaðarþings. Á þetta hefur landbn. fallizt og leggur því til, að málið verði afgreitt með rökstuddri dagskrá, svo hljóðandi:

„Með því að í frv. eru nokkur nýmæli, sem meðal annars taka til allra hreppsnefnda á landinu, telur deildin rétt, að ríkisstjórnin sendi stjórn Búnaðarfélags Íslands frv. með ósk um, að hún leggi það fyrir næsta búnaðarþing til umsagnar. Í trausti þess, að svo verði, tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“

Um þetta hef ég svo ekkert frekara að segja. N. væntir þess, að hv. þd. geti fallizt á þessa afgreiðslu. Læt ég svo máli mínu lokið.