08.02.1951
Efri deild: 66. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 95 í C-deild Alþingistíðinda. (3085)

70. mál, lyfsölulög

Frsm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Ég vil til viðbótar því, sem hér hefur verið sagt, þakka hæstv. ráðh. fyrir undirtektir hans við þetta mál. Það er vissulega ánægjuefni fyrir nefndina, að hann hefur tekið svo vel í þetta mál, vegna þess að í gegnum sitt starf hefur nefndinni orðið ljóst, hvílíkt nauðsynjamál er hér á ferð.

Út af því, sem hv. 4. þm. Reykv. sagði um blöndun lyfja, langar mig til að geta þess, að um þetta munu vera skiptar skoðanir. Mér er einmitt kunnugt um, að þeir, sem minni lyfjabúðirnar hafa, halda fram, að þeim notist að vinnukrafti sinum við blöndun lyfjanna og þeim sé hentugt að hafa smáframleiðslu. Þetta er náttúrlega til athugunar líka, þegar málið verður tekið til endanlegrar athugunar. Það sjónarmið var í nefndinni, sem einnig hefur komið fram hjá hæstv. ráðh., að einasta lausnin á þessu máli væri sú að greina það meira í sundur en gert hefur verið í þeim frv., sem hér liggja fyrir, og fagna ég því, að ráðh. skuli vera þarna sammála.