21.11.1950
Neðri deild: 25. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í C-deild Alþingistíðinda. (3121)
26. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Ég vil vekja athygli hæstv. forseta á því, að hér eru nú mjög fáir á fundi, og nokkuð vantar á, að deildin sé ályktunarfær, og af því að hér er um að ræða mál, sem ágreiningur er um, þá vildi ég óska eftir, að umr. yrði ekki haldið áfram, nema fleiri séu á fundi. En að sjálfsögðu mun ég hlíta úrskurði hæstv. forseta, óski hann eftir að halda áfram umr.