21.11.1950
Neðri deild: 25. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 106 í C-deild Alþingistíðinda. (3123)
26. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum
Frsm. (Emil Jónsson):
Herra forseti. Það var rétt hjá hæstv. forseta, að mál þetta er búið að vera nokkuð lengi, eða um viku, á dagskrá án þess að vera tekið fyrir, og þar sem maður heyrir nú utan að sér, að þetta þing eigi ekki að standa eins lengi og undanfarin þing, þá veitir ekki af að hraða málinu, en ég er sammála hv. þm. V-Húnv., að æskilegt sé, að fleiri hlýddu á rök hans í málinu og þau gagnrök, sem fram kunna að koma. Ég mun því ekki hafa á móti því, að málið verði nú tekið af dagskrá, en vona, að kappkostað verði að koma málinu sem fyrst út úr deildinni.