05.12.1950
Neðri deild: 33. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 119 í C-deild Alþingistíðinda. (3135)
26. mál, öryggisráðstafanir á vinnustöðum
Skúli Guðmundsson:
Herra forseti. Við 2. umr. þessa máls hér í d. voru samþ. allmargar brtt. við frv., og í einni þessara till. stóð, að samþykki öryggisráðs þyrfti að koma til um eitt atriði. En við 2. umr. var samþ. að fella niður úr frv. kaflann um öryggisráð. Ég vil því leggja hér fram skriflega brtt. um það, að orðin „með samþykki öryggisráðs“ í 47. gr. frv. falli niður. Ég hef ekki séð öryggisráð nefnt á öðrum stað í frv., og má því skoða þetta sem eðlilega leiðréttingu á frv.