16.01.1951
Efri deild: 50. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 132 í C-deild Alþingistíðinda. (3165)

109. mál, erfðalög

Gísli Jónsson:

Herra forseti. Þann 24. nóv. f. á. var hér til umr. og vísað til hv. allshn. frv. á þskj. 197, um breyt. á erfðal., nr. 42 23. maí 1949. Ég vil mælast til þess við hæstv. forseta, að hann sjái um, að annaðhvort verði skilað nál. um málið, sem búið er að liggja nálægt tveim mánuðum hjá allshn., eða að málið verði tekið til afgreiðslu í d. án nál., því að ég hafði hugsað mér að fá efnislega afgreiðslu í málinu, áður en þingi slítur.