12.02.1951
Efri deild: 67. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 135 í C-deild Alþingistíðinda. (3176)

109. mál, erfðalög

Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Þetta frv. hefur legið alllengi hjá allshn. og hefur verið sent til umsagnar mætra manna og stofnana, enda fylgja því sæmilega ýtarlegar álitsgerðir frá þrem aðilum, þ. e. a. s. frá hæstarétti, frá borgarfógeta Reykjavíkurbæjar og Háskóla Íslands. Fljótt á litið virðast álitsgerðir þessara aðila hníga í þá átt, að fella beri frv. Rétt er þó að vekja athygli á því, að í rauninni er um að ræða tvö meginatriði í þessu frv., í fyrsta lagi að takmarka nokkuð rétt manna til arfs frá því, sem nú er, og í öðru lagi, að sá hluti eftirlátinna eigna, sem enginn erfingi finnst að og rennur þá samkvæmt núgildandi lögum í ríkissjóð, skuli framvegis renna til Tryggingastofnunar ríkisins með þeim hætti, sem segir í 12. gr.

Ef litið er á umræddar álitsgerðir, þá kemur það glöggt í ljós, að allir eru sammála um, að rétt sé, að þetta fé renni til Tryggingastofnunarinnar eða einhverrar viðlíka starfsemi. Þannig segir t. d. svo í álitsgerð hæstaréttar, með leyfi hæstv. forseta: „Hins vegar virðist ekki óeðlilegt, að eigur, sem andaður maður átti og einstaklingar erfa ekki, renni til Tryggingastofnunar ríkisins í stað ríkissjóðs.“ — Þetta er umsögn hæstaréttar um þetta atriði. Og borgarfógeti segir um þetta einnig svo: „Þá sé ég ekkert því til fyrirstöðu, að í stað þess að arfur falli í ríkissjóð, að hann renni til Tryggingastofnunar ríkisins.“ — Loks segir svo í álitsgerð lagadeildar háskólans: „Deildin telur, að ákvæði 33. gr. gildandi erfðalaga sé ekki heppilegt að því leyti, að eðlilegra væri að láta þetta fé renna í sérstakan sjóð, sem ynni að menningar- og mannúðarmálum, með svipuðum hætti og er í Svíþjóð.“

Þeir þrír aðilar, sem hér eru taldir, eru þannig sammála um, að ekki sé eðlilegt, að arfur, sem enginn einstaklingur á að taka, renni beint til ríkissjóðs sem eyðslufé. Sá er líka munur á slíkum arfshlut og venjulegum tekjum ríkissjóðs, að hér er um að ræða beina eign, sem fellur til ríkisins og verður að teljast óeðlilegt að renni til beinna eyðsluútgjalda. Mér þykir rétt að benda alveg sérstaklega á þetta atriði, að það þykir ekki rétt, að arfur, sem enginn er til að taka, skuli verða eyðslufé ríkissjóðs, heldur renna til stofnana, sem nauðsynlegar eru til almenningsheilla. Og ég vil taka það fram sem mína persónulegu afstöðu, að ég tel eðlilegt, að erfðafjárskatturinn renni einnig til slíkrar starfsemi.

Þá kem ég að hinu atriði frv., sem menn eru síður á eitt sáttir um, að takmarka erfðaréttinn allverulega frá því, sem nú er. Andstæðingar þeirrar takmörkunar segja, að með l. frá 1949 hafi í þessu efni verið gengið svo langt, að ekki megi stiga fleiri spor á þeirri braut. Hv. frsm. meiri hl. flutti hér áðan í sinni ræðu hin almennu rök þeirra um skerðingu frv. á eignarréttinum, sem hann taldi eðlilegt, að 4. þm. Reykv. væri hrifinn af, en mjög óeðlilegt, að hv. þm. Barð. skyldi vilja koma í kring. Ég held nú, að ef hv. þm. Seyðf. hugsaði sig um, þá sæi hann nú fljótlega, að það getur ekki talizt eðlilegt að vilja láta eignarrétt manna á jarðnesku góssi haldast langt út yfir gröf og dauða. Hann telur, að það muni draga úr viðleitni manna til að safna fé, ef þessi réttur yrði takmarkaður svo sem frv. gerir ráð fyrir. Ég tel nú hins vegar, að allt of mikið sé gert úr þessu atriði. Það er margt annað, sem hefur miklu meiri þýðingu í þessu efni, svo sem hin gífurlega skerðing, sem nú á sér stað á öllum peningaverðmætum, eins og með gengisfellingunni t. d. Það er ekki með neinu móti unnt að draga meira úr sparnaðarviðleitni manna en með slíkum ráðstöfunum. Hvað frv. snertir, þá er hins vegar ekki um neina skerðingu að ræða á erfðarétti barna frá gildandi l., ekki heldur foreldra né föður- eða móðurforeldra, og hið sama er að segja um rétt maka, en þetta eru þeir aðilar, sem hverjum einstaklingi eru nákomnastir, og þeirra réttur á að haldast, eins og vera ber. Ef fjær er leitað, þá koma systkini næst, og er gert ráð fyrir því í frv., að réttur þeirra hverfi, en það er þó ekki gegnumfært, eins og bent hefur verið á. Og ég er sammála hv. frsm. meiri hl. um það, að ekki sé rétt að svipta þau með öllu rétti til arfs. En ég vildi segja, að um allan þorra manna muni vera svo háttað, að í viðleitni sinni til fjársöfnunar beri þeir ekki fyrir brjósti stærri hóp en þetta og það sé því út í hött að tala um, að með frv. sé dregið úr þeirri viðleitni, þó að erfðaréttur taki t. d. ekki til systkinabarna. Hins vegar gæti það haft nokkur áhrif í þessa átt að binda ráðstöfunarrétt með erfðaskrá við 25%. En samkvæmt gildandi 1. er það svo, að eigi maður lögarfa á lífi, má hann ekki ráðstafa nema ¼ eigna sinna með erfðaskrá.

Það, sem gert er með þessu frv., er að gefa Tryggingastofnun ríkisins sama rétt og yztu lögörfum nú. Og ég verð að segja, að með tilliti til þeirra gömlu tengsla, sem áður voru á milli framfærsluskyldunnar og erfðaréttarins, þá tel ég, að þetta sé rétt gert. Að fornum norrænum rétti fór þetta tvennt saman, þannig að hver, sem rétt átti til arfs eftir mann, var einnig skyldugur til að sjá honum farborða, ef þörf krafði. Hv. frsm. telur þessa reglu úr gildi fellda fyrir 100 árum, og rengi ég hann ekki um, að hann fari þar rétt með, en það breytir engu um, að reglan verður að teljast mjög heilbrigð og eðlileg. — Enn ber þá á það að líta, að það er lítt hugsanlegt, að með svo stórkostlegum breytingum sem orðið hafa á skömmum tíma á þjóðskipulagi okkar geti erfðalögin haldizt óbreytt. Þjóðfélagið hefur tekið að sér að rækja mörg þau hlutverk, sem áður hvíldu á herðum einstaklinga, og löggjöf breytist á ýmsa lund með breyttum tímum. Ég verð að segja, að ég hef ekki trú á því, að þorri manna sé svo gerður, að hann sé að reyna að safna sem stærstum fjárfúlgum, til þess að t. d. systkinabörn megi njóta góðs af því. Auk þess er svo umdeilanlegt, hvort heppilegt getur talizt, að viss hluti manna fái þá aðstöðu í lífinu að geta lifað af vöxtunum einum af eign feðra sinna. (Dómsmrh.: Ætli það sé nú algengt hér?) Ja, um framtíðina skal ég engu spá, en eftir stóreignaskattinum að dæma, þá eru þeir nokkuð margir, sem gætu tryggt börnum sínum sómasamlegan lífeyri þannig, ef eignir þeirra væru t. d. settar í sæmilega örugg ríkisskuldabréf. Og því er ekki að neita, að þetta mál er nú orðið „meira aktuelt“ en áður var við gífurlega röskun á gjaldeyri þjóðarinnar og eignatilfærslu.

Hv. frsm. meiri hl. tók til dæmis mann, sem ætti efnilegt fyrirtæki og son, sem dæi á undan honum, og þótti ekki vænlegt, að þessi eign rynni til Tryggingastofnunarinnar. En ætli hún væri þar nú fjarskyldari aðili en t. d. afkomendur langalangafa þessa manns? — Ég skal játa, að mér þykir rétt, að nokkuð yrði rýmkaður ráðstöfunarrétturinn frá því, sem fyrirhugað er, en að menn hafi ráðstöfunarrétt yfir eignum sinum öllum, er í ósamræmi við gildandi lög og hugsunarhátt.

Ég mun ekki að þessu sinni leggja fram brtt. við netta frv., en tel, eins og segir í nál. mínu á þskj. 650, að rétt sé að fá úr því skorið við þessa umræðu, hvort deildin sé á þeirri skoðun, að ekki beri að svo komnu að gera neinar breytingar á erfðalögunum. Ef till. hv. meiri hl. n. verður samþ., þá þýðir það, að tilgangslaust er að bera fram nokkrar brtt. við frv., enda er nokkur vandi að semja þær, og ég vildi því sjá, áður en út í það er farið, hvernig atkvæðagreiðslu reiðir af.

Ég vil svo að lokum taka það fram, að mér virðist, að þótt niður væru felldar þær takmarkanir, sem með frv. eru gerðar á erfðaréttinum, þá mætti 11. og 12. gr. frv. standa eftir sem áður. Hv. frsm. meiri hl. lagði til, að frv. yrði fellt í heild, og studdist við álitsgerðir þær, sem áður er getið. En staðreynd er, að þær eru ekki á móti 11. og 12. gr. frv., heldur eru þær meðmæltar þeim breytingum, sem þar er ráð fyrir gert. Um þetta atriði vildi ég gjarnan bíða eftir að fá að heyra álit hv. frsm. meiri hl., og geti hann ekki fallizt á þetta, þá vil ég leyfa mér að óska þess, að hæstv. forseti beri upp sérstaklega við atkvæðagreiðslu 11., 12. og 13. gr. frv.