15.02.1951
Efri deild: 72. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 145 í C-deild Alþingistíðinda. (3180)
109. mál, erfðalög
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti. Þar sem ég átti nokkurn þátt í undirbúningi þeirra laga, sem hér er lagt til að breyta, get ég ekki látið hjá líða að gera nokkrar athugasemdir við frv. það, sem hér er til umræðu. Lög þessi, sem hafa aðeins gilt í tæp tvö ár, fólu í sér allvíðtækar breyt. frá eldri lagaákvæðum, en um þau nýmæli, sem þar eru, er ekki enn fengin sú reynsla, að ástæða sé til að hrófla við þeim þegar í stað. Í þessari nýju löggjöf var í sumum atriðum gengið öllu lengra en gert er í gildandi lögum annars staðar á Norðurlöndum. Nú er stefnt að því að samræma ýmiss konar löggjöf í þessum löndum, m. a. erfðalög, og finnst mér þá ekki æskilegt að gera hér að svo stöddu róttækar breyt. á þessum lögum.
Meginbreyt., sem felst í frv. hv. þm. Barð., er sú, að erfðaréttur annarra skyldmenna en hinna allra nánustu verði mjög skertur, en það fé, sem samkv. gildandi lögum fer til útarfa, renni til Tryggingastofnunar ríkisins og verði varið til að koma á fót öryrkjastofnun. Með erfðalögunum, sem selt voru í hittiðfyrra, var höggvið svo mjög í erfðarétt manna, að ég tel, að þar hafi verið nóg að gert, þótt ekki verði lengra gengið. Að sjálfsögðu getur verið þörf á að koma á fót öryrkjastofnun, en ég get ekki fallizt á að skerða mjög erfðarétt manna hennar vegna, enda finnst mér lítil ástæða til slíkra ráðstafana, meðan slík stofnun er ekki til og allt svífur í lausu lofti um fyrirkomulag hennar og rekstur. Verði hins vegar talin þörf á að auka hlut hins opinbera af þeim fjármunum, sem ganga að erfðum samkv. gildandi lögum, finnst mér frekar koma til mála að hækka erfðafjárskattinn en að fara þessa leið. Í þessu sambandi vil ég taka fram, að ég get ekki séð, að í núgildandi fjárlögum sé gert ráð fyrir því erfðafé, sem rennur í ríkissjóð samkv. nýju erfðalögunum, en að sjálfsögðu hefur ríkissjóður nóg not fyrir það fé, sem af þessum ástæðum kynni að renna til hans.
Aðalrök hv. flm. fyrir hinni miklu takmörkun á erfðaréttinum eru þau, að framfærsluskyldan, sem áður hvíldi á ættingjum, hafi færzt yfir á Tryggingastofnunina. Þetta finnst mér á nokkrum misskilningi byggt. Tryggingastofnunin er engin góðgerðastofnun og hefur í raun og veru enga framfærsluskyldu, heldur stofnun, þar sem menn kaupa sér ýmiss konar tryggingar.
Í frv. er lagt til að fella niður 18. gr., sem fjallar um arf kjörbarna og kjörforeldra. Skilst mér, að kjörbörn missi með öllu rétt til erfða eftir foreldra, ef þetta verður samþ., enda þótt á þau sé minnzt í öðru sambandi í 2. gr. frv. Finnst mér þessi breyt. fráleit.
Ég get ekki heldur fallizt á þá breyt., sem felst í 5. gr. frv., þess efnis, að erfðaréttur þess hjóna, sem lengur lifir, sé aukinn, þótt á lífi séu réttbornir erfingjar samkv. núgildandi löggjöf.
Í frv. er enn fremur lagt til, að 28. gr. erfðalaganna falli niður, en sú grein fjallar um það, að undir sérstökum kringumstæðum megi erfðaskrá vera munnleg. Nú er það svo, að alltaf getur svo voveifleg atvik að höndum borið, að ekkert ráðrúm gefist til að koma arfleiðsluskrá á framfæri á annan hátt en gert er ráð fyrir í þessari grein. Þess vegna get ég engan veginn fellt mig við að greinin verði felld úr lögunum.
Ég ætla nú ekki að ræða þetta frekar að sinni. Ég hef drepið á það helzta, sem mér finnst athugavert við frv., og gert grein fyrir afstöðu minni til þessa máls.