16.02.1951
Efri deild: 73. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 148 í C-deild Alþingistíðinda. (3183)

109. mál, erfðalög

Frsm. minni hl. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Ég beindi þeirri fsp. til hv. frsm. meiri hl. í fyrri ræðu minni hér, hvort meiri hl. gæti ekki fallizt á, að till. þeirra tæki ekki til 11., 12. og 13. gr. frv., svo að það meginatriði frv., sem lýtur að því, hver vera skuli arftaki þess fjár, sem enginn lögerfingi er að, megi verða að lögum, þótt frv. nái ekki fram að ganga að öðru leyti. Því miður tók hv. frsm. ekki fram í ræðu sinni, hvernig hann vildi snúast við þessari málaleitun, og kom aðeins óbeint að því, er hann sagði, að hér væri um svo smávægilegar upphæðir að ræða, að ekki munaði um þær til eða frá. Um það atriði þori ég ekki að fullyrða, þar sem lögin frá 1949 eru enn svo ung. Sennilegt tel ég þó, að upphæðirnar verði ekki háar, en þetta mætti þó athuga betur fyrir 3. umr., hvort einhverjar líkur væri til, að þær næmu einhverju verulegu, og hvort ekki mætti þá afla einhverra viðbótartekna, t. d. með því að erfðafjárskatturinn yrði notaður í sama skyni, eins og hér hefur verið talað um. Um þetta atriði þætti mér vænt ef hv. frsm. vildi segja álit sitt, áður en umræðu lýkur. Hv. þm. Barð. drap á þetta í hinni rökföstu ræðu sinni í gær, og mér skildist, að hann væri fyrir sitt leyti tilleiðanlegur að athuga þennan möguleika.

Ég sé ekki ástæðu til að flytja um þetta langa ræðu. Hv. frsm. tók fram, að velgengni hælisins að Reykjalundi byggðist fyrst og fremst á því, að einkaframtakið hefði verið þar að verki. Þarna hafa nú að vísu að staðið mjög fjölmenn félagssamtök, sem hafa ekki verið með neinu sniði einkaframtaksins. Auk þess hefur svo almenningur í landinu og ríkissjóður veitt þessu menningarmáli mikinn styrk beint og óbeint, þar sem allir hafa verið sammála um, að hér væri unnið mikið og gott verk. Það, sem þarna hefur gerzt, er því ekki fyrst og fremst sönnun fyrir ágæti einkaframtaksins, heldur hinu, hvernig stuðla má að því, að menn með skerta starfskrafta geti orðið nýtir þjóðfélagsborgarar. Og þann lærdóm tel ég að fyrst og fremst beri að draga af starfseminni að Reykjalundi.

Hv. 11. landsk. sagði hér í ræðu sinni í gær, að fyrsta sporið ætti að vera að setja ákvæði um fyrirkomulag hinnar nýju stofnunar. Ég held, að um þetta atriði greini okkur ekki mikið á. Ég held þó, að það sé alveg rétt og eðlileg leið að byrja á því að setja fyrirmæli um að afla fjár til þess að koma fyrirtækinu á fót, og síðan megi svo setja nánari reglur um það, hvernig haga skuli eign og rekstri, og á það er einmitt bent í 12. gr., og hygg ég, að þær ábendingar séu alveg nægilegar. Ég vil hins vegar taka fram, að ég álít ekki langt á milli okkar hv. 11. landsk. um þetta fyrirkomulagsatriði, og ef því sama er náð með öðrum hætti, þá mun ég ekki setja það fyrir mig, en sé þetta hins vegar gert til þess að eyða málinu, þá erum við ekki sammála. Hv. 11. landsk. sagði einnig, að hann áliti vel koma til mála að auka erfðafjárskattinn — að mér skildist til að auka þessar framkvæmdir. Mér þykir vænt um að heyra þetta, og vona ég, að við getum átt samleið um að finna viðunandi lausn.

Hv. frsm. meiri hl. taldi í sinni fyrri ræðu, að ef þetta frv. yrði að l., þá mundi það stórkostlega raska grundvellinum undir fjárhagskerfi þjóðarinnar, og hv. þm. Barð. skildi það svo, að það ætti að fara til fjárhagsráðs. Ég get ekki fallizt á, að hér sé stórt byltingarfyrirtæki á ferðinni. Þær takmarkanir, sem gerðar voru á erfðaréttinum með l. 1949, sýnast mér heldur minni en nú er lagt til, að því er lögarfa snertir. Það getur alltaf verið nokkurt álitamál, hvað langt eigi að ganga í því að takmarka rétt manna til arfs, og ég bendi einnig á það í nál., að ég geti hugsað mér að svipta ekki systkini fullkomlega rétti til arfs, enda skildist mér á hv. frsm. meiri hl., að það væri ekki takmörkun á rétti lögarfa, sem hann teldi byltingarkennt, heldur hitt, að svipta menn rétti til ráðstöfunar á eignum sínum með arfleiðsluskrá umfram ¼ eignar. Það virtist honum bylting og stórkostleg skerðing á eignarréttinum og benti á það, að samfara því væri veruleg hætta, sem sé sú hætta, að menn selji slíkan ráðstöfunarrétt og afhendi eignir sínar öðrum. Ég fæ ekki séð, hvaða hætta er þessu samfara. Er verra að menn ráðstafi eignum sinum í lifanda lífi en að það sé gert að þeim látnum? Ég veit, að hv. þm. Seyðf. dettur ekki í hug, að allir þeir, sem mundu gera arfleiðsluskrá, væru svo forsjálir að ráðstafa eignum sínum í lifanda lífi, fyrir sitt andlát. Það getur verið að það mundi gera tekjur Tryggingastofnunarinnar nokkru minni, að menn notuðu þennan rétt, en þá er það ekki óréttlátt gagnvart þeim mönnum, sem eiga féð, að þeir fái að hafa hönd í bagga um, hvert það rennur. Þeir, sem eru svo forsjálir að gera arfleiðsluskrá og ákveða, hvert þeir vilja láta sitt fé, geta afhent féð í lifanda lífi, ef þeir vilja tryggja, að sá réttur sé ekki af mönnum tekinn. Fullyrðingar um það, að eignarrétturinn sé stórkostlega skertur og að með þessu sé gerð stórkostleg röskun á fjárhagskerfi þjóðarinnar, eru alveg út í loftið, eins og hv. frsm. meiri hl. réttilega benti á með því að benda á þennan rétt manna til ráðstöfunar á eignum sínum í lifanda lífi. Sannleikurinn er sá, að það, sem hér greinir á um, er það, hvar mörkin eigi að setja í þessum efnum, — ég skal viðurkenna, að það er álitamál og menn hafa á því mismunandi skoðun, en þegar fullyrt er, að hér sé gengið í bága við réttlætishugmyndir manna og efnahagskerfinu stefnt í voða, er það ofmælt og byggt á misskilningi.

Ég skal láta þetta nægja að sinni, en vildi aðeins mega vænta þess, að hv. frsm. meiri hl. svaraði fyrri fyrirspurnum mínum um þetta efni, hvort hann getur ekki fallizt á, að þrjár síðustu gr. frv. gangi í gegnum þessa umr. og málið yrði tekið til athugunar fyrir 3. umr. í hv. n.