19.02.1951
Efri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 159 í C-deild Alþingistíðinda. (3199)

109. mál, erfðalög

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég greiddi atkv. með því, að þetta frv. gengi til 3. umr., en tók það fram við nafnakall, að atkv. mitt gilti aðeins um það að vísa frv. til 3. umr. Ástæðan til þess, að ég vildi, að frv. gengi til 3. umr., eins og þá var komið, að umr. hafði verið slitið og því ekki hægt að bera fram till. þá, var sú, að ég viðurkenni, að tilgangurinn, sem lá í því, sem eftir var af frv., væri í sjálfu sér mjög góður og lofsverður, sem sé að greiða fyrir því, að komið verði upp öryrkjahæli í landinu, þótt svo sé til orða tekið í frv., að sá erfðahluti, sem ríkissjóði ber samkvæmt gildandi l., gangi til Tryggingastofnunar ríkisins, og jafnframt sé ákveðið, hvað hún eigi að gera við það fé, sem sé að verja því til þess að koma upp öryrkjahæli. Eins og frv. er nú orðið, er því ekki um annað að ræða í því en að tryggja væntanlegu öryrkjahæli það fé, sem ríkissjóði tilfélli nú í arf, í staðinn fyrir að það rann áður til fjarskyldra ættingja, og er þetta auðvitað miklu minna fé, sem um er að ræða, heldur en ef sú breyt. á erfðaskiptunum sjálfum hefði verið samþ., sem í frv. fólst í fyrstu og flm. vitanlega ætlaðist til að gengi til þessara nota.

En nú hefur legið annað frv. fyrir þessari d. um stofnun öryrkjahælis, sem flutt er af hv. þm. S-Þ. (KK). Það frv. er, að því er ég bezt veit, í n., og hefur ekki komið nál. um það. Ég hef þó heyrt, að sú n., sem um málið hefur fjallað, sé að leita sér upplýsinga hjá sveitarstjórnum víðs vegar úti um land um aðstoð við þetta mál. Eins og þetta frv., sem hér er til umr., er nú orðið, virðist því liggja beinar við að steypa þessum tveim frv. saman en að afgr. þetta frv. sérstaklega. Vil ég leyfa mér að benda hv. d. og hv. flm. þessa frv. á, að það er að mér virðist óhugsandi, að frv. geti orðið að l. á þessu þingi, jafnvel þótt þessi d. samþ. það, því að þá á það væntanlega eftir athugun í n. og að ganga gegnum 3 umr. í Nd. Það liggur í augum uppi, að þetta Alþ. mun ekki standa marga daga hér eftir, og þess vegna er hægt að slá því föstu, að frv. muni ekki ná samþykki á þessu þingi. Mér virðist því með tilliti til þessa og einnig með tilliti til þess, að frv. um svipað efni liggur fyrir d., sem sjáanlega verður ekki afgr. á þinginu, þá verði unnið meira gagn með því að fela ríkisstj. undirbúning málsins fyrir næsta þing heldur en með því að þessi hv. d. samþ. frv. og það dagaði síðan uppi í hv. Nd. Mér finnst því, að sú bezta afgreiðsla, sem málið geti nú fengið — beinlínis málefnisins vegna —, sé sú að afgr. það með dagskrá, þar sem ríkisstj. er falið að undirbúa málið frekar fyrir næsta Alþ., því að slík dagskrá, sem felur í sér beina áskorun til ríkisstj., er lögformleg samþykkt, sem ríkisstj. má í raun og veru ekki skella skolleyrunum við og hefur í sjálfu sér sama gildi og t. d. þál. Af þessum ástæðum, sem ég hef nú greint, ætla ég að leyfa mér að bera fram till. til rökst. dagskrár, sem er á þessa leið, með leyfi hæstv. forseta:

„Í því trausti, að ríkisstj. undirbúi lagafrv. um stofnun og rekstur öryrkjahælis og leggi till. sínar fyrir næsta Alþ., tekur d. fyrir næsta mál á dagskrá.“

Ég álít, að ef þessi dagskrártill. mín yrði samþ., fengist að nokkru leyti pósitív afgreiðsla á báðum þeim málum, sem ég hef nú minnzt á. Þar sem hér segir, að ríkisstj. sé treyst til að undirbúa stofnun öryrkjahælis, þá tekur það atriði frekar til frv. hv. þm. S-Þ., en þar sem talað er um reksturinn, tekur til þess frv., sem nú liggur hér fyrir, og er þar vitanlega átt við, hvernig tryggja eigi hælinu fjármagn til rekstrarins.

Ég er sannfærður um það, að slík afgreiðsla sem ég legg hér til greiðir meira fyrir því, að þetta nauðsynjamál komist í framkvæmd, heldur en þótt frv. verði samþ. í annarri d., en dagaði uppi í hinni, og vona ég því, að samkomulag geti náðst um að afgr. málið á þennan hátt. Ég vil svo leyfa mér að afhenda hæstv. forseta þessa till. mína.