19.02.1951
Efri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í C-deild Alþingistíðinda. (3204)
109. mál, erfðalög
Þorsteinn Þorsteinsson:
Herra forseti. Mér virðist þessi dagskrártill. fram komin til að finna, hvaða fyrirkomulag skuli vera á stofnuninni. Þegar ríkisstj. er búin að leggja fram frv. um, hvaða fyrirkomulag verði á hælinu, er heppilegra að ákveða annað í sambandi við það. Ef fyrirkomulagið mætir velvilja, þegar frv. liggur fyrir, er hægt að ákveða, hvort verja skuli þessu fé til þess. Ég lýsi því yfir, að ég mun ekki binda atkv. mitt fyrir fram. Ég tel rétt að fylgja dagskrártill. og tel, að hún verði til að koma málinu áfram. Þá er hægt að ákveða, hvaðan féð skuli koma, því að ekki nægir erfðaféð. Það er mest um vert, að hælið komist upp, en ekki hvort þetta komi beint sem erfðagóss eða frá ríkissjóði. Eins og málin horfa nú, mun ég greiða till. atkv.