15.02.1951
Efri deild: 72. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 168 í C-deild Alþingistíðinda. (3230)

96. mál, fjárhagsráð

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Frv. til l. um breyt. á l. nr. 70 5. júní 1947, um fjárhagsráð, innflutningsverzlun og verðlagseftirlit, hafði gengið í gegnum Nd. í nóvember- og desembermánuði s. l. og var eftir afgreiðslu málsins í Nd. sent til þessarar deildar fyrir alllöngu síðan, og skilst mér, að nál. hafi verið útbýtt 18. jan. 22. jan. er málið tekið hér á dagskrá og út af henni aftur án þess að vera rætt, og sama sagan endurtók sig 23. jan. Þó að ég sé ekki í n. þeirri, sem fjallaði um málið, þá hef ég áhuga á máli þessu. Ég hef farið þess á leit við hæstv. forseta, að málið væri tekið á dagskrá, þar sem önnur þingdeildin — og það sú stærri — hefur þegar samþykkt frv., en mér skilst á hæstv. forseta, að hæstv. ríkisstj. óski eftir því, að málinu sé haldið kyrru um sinn, en nú hafa þeir hæstv. ráðh., sem ég hef rætt þetta við, ekki viljað kannast við, að þeir hafi farið fram á slíkt. Ég tel ekki hæfa að stöðva málið, þegar það hefur gengið í gegnum aðra deild þingsins, og vil ég því spyrja hæstv. forseta, hvort hann sjái sér ekki fært að lofa því, að málið verði tekið hér á dagskrá næsta fundardag.