16.02.1951
Efri deild: 73. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 170 í C-deild Alþingistíðinda. (3239)
96. mál, fjárhagsráð
Forseti (BSt) :
Mér er kunnugt um, að hæstv. ríkisstj. hefur þetta mál nú til athugunar og hefur ekki í hyggju að koma því fyrir kattarnef, og af þeim orsökum hefur dregizt, að málið kæmi hér til umr. Ég mun því verða við þeim tilmælum, sem hér hafa komið fram um að taka málið af dagskrá.