26.02.1951
Efri deild: 77. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (3250)
96. mál, fjárhagsráð
Forseti (BSt) :
Þetta frv. er á dagskrá hér í dag, og skil ég ekki vel þær umleitanir, sem hér hafa komið fram. Annars er það eins og kunnugt er um þetta 7. mál, að hæstv. ríkisstj. hefur tjáð mér hvað eftir annað, að það sé að vænta till. frá henni um það. En það var boðað í dag, að út af þeim ráðstöfunum, sem gerðar verða vegna bátaflotans, mundi þurfa að setja einhverja löggjöf og að því er mér skilst á þessu þingi. Þar af leiðandi má búast við, að ríkisstj. leggi fram alveg nýtt þingmál, sem þarf að ganga í gegnum báðar deildir hér eftir, og þar af leiðandi get ég ekki séð, ef þingvilji er fyrir þessu máli, að það þurfi að vera í hættu. Annars er það hér á dagskrá, og meining mín var að halda henni áfram.