05.03.1951
Efri deild: 83. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 177 í C-deild Alþingistíðinda. (3260)

96. mál, fjárhagsráð

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Mér finnst nú ýmislegt sögulegt vera farið að gerast. Ég hef hér nál. á þskj. 505 frá óskiptri fjhn., undirritað af þeim Bernharð Stefánssyni, form., Gísla Jónssyni, fundaskr. og frsm., Karli Kristjánssyni, Þorsteini Þorsteinssyni og Brynjólfi Bjarnasyni. Þar segir meðal annars, með leyfi forseta: „Samkomulag varð um að leggja til, að frv. yrði samþ., en einstakir nefndarmenn áskilja sér rétt til að bera fram brtt. eða fylgja brtt., sem fram kynnu að koma.“ Þetta er dagsett 17. jan. 1951. (HV: Það hefur verið kippt í spottann.) Nú kemur á þessum fundi fram skrifleg till. til rökstuddrar dagskrár frá meiri hl. fjhn. um að vísa málinu frá. Þetta eru vægast sagt ákaflega óvenjuleg vinnubrögð, eins og forseti veit. Annaðhvort hafa nm. verið of fljótráðir 17. jan. eða eitthvað nýtt og stórkostlegt hefur skeð, sem veldur þessum sinnaskiptum. Jú, ég játa, að eitt og annað hefur gerzt. Það hefur gerzt, að með tillögum ríkisstj. um að taka 1/5 af andvirði útflutningsins hefur verið ákveðið, að það skyldi ekki nota til kaupa á almennum nauðsynjum, t. d. byggingarvörum, heldur minna nauðsynlegum vörum. En þegar þessar ráðstafanir voru samþykktar hér, var látið fylgja, að þetta mundi ekki auka á erfiðleika landsmanna; heldur létta hag þeirra, því að það væru tryggð svo mikil lán á erlendum markaði. Varla getur þetta hafa verið ástæðan, heldur eitthvað annað, sem ekki er gefin skýring á.

Að því er þetta frv. sjálft snertir, skal ég játa, að ef fjárhagsráð ynni eins og lögin ætlast til, gæti þetta frv. gert bæði gagn og ógagn. Þá væri það taumhald, sem ráðið hefði á of miklum byggingum, tekið úr höndum þess. Þá væri ráðinu gert ókleift að hafa það hóf á um byggingar, sem nauðsynlegt er til að koma í veg fyrir, að svo margir byrjuðu að byggja, að mikill hluti þeirra yrði að hætta. — Ef störf fjárhagsráðs hefðu verið rækt með þeim hætti, sem til var ætlazt í lögum, þá ætti þetta frv. að vera óþarft. En nokkur misbrestur hefur orðið á þessu. Og þótt þetta frv. verði samþ., eykur það ekki magn byggingarefnisins. Þess vegna er nokkur hætta á því, að ef þetta er notað í ríkum mæli, fari svo, að fleiri byrja að byggja en geta lokið því á skömmum tíma.

Eftir upplýsingum, sem ég hef fengið, miðar fjárhagsráð við, að á öllu landinu verði leyfð bygging aðeins 300–400 íbúða. Ef frv. verður samþ., er ekki vafi á því, að þessar íbúðir hafa fyrsta réttinn og fyrst verður tekið tillit til þeirra. Í trausti þess, að þessar íbúðir verði látnar ganga fyrir öllum öðrum og innflutningur á byggingarefni verði rýmkaður, svo að ganga megi lengra en fjárhagsráð gerði ráð fyrir, greiði ég atkv. með frv. — Ég vil benda á, að í því frv., sem var hér til 2. umr. í dag og var um heimild handa ríkisstj. til lántöku, var gert ráð fyrir 15 millj. kr. til Búnaðarbankans, sem ég geri ráð fyrir að verði varið meðal annars til bygginga í sveitum. Ég þykist vita, að fjárhagsráð hefur ekki tekið tillit til þessa, en þá gæti runnið fé til bygginga á öðrum stöðum.

Ég mun því greiða atkv. með frv., ekki sízt með tilliti til þess, að í Sþ. liggur fyrir till. um að afnema skömmtun á byggingarefni, sem ég held að n. mæli með að verði samþ. Ef ekkert dularfullt afl ræður þar og ekkert dularfullt atriði skeður, má gera ráð fyrir, að till. verði samþ.