05.03.1951
Efri deild: 83. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 178 í C-deild Alþingistíðinda. (3261)
96. mál, fjárhagsráð
Bernharð Stefánsson:
Herra forseti. Það voru aðeins örfá orð. — Við fyrri hluta eða miðhluta þessara umr. hélt hv. 1. landsk. þm. því fram, að brtt. okkar hv. þm. S-Þ. væru komnar fram til að drepa þetta mál, því að það kæmi málinu í hættu að bera fram við það brtt. Nál. fjhn. er dagsett 17. jan., og voru brtt. afhentar til prentunar þá skömmu síðar og útbýtt. Það datt engum í hug 17. jan., að þingi væri að ljúka. Þess vegna er það, sem hv. 1. landsk. þm. sagði um, að brtt. væru bornar fram í því skyni að koma frv. fyrir kattarnef, hreinasta fjarstæða. Það var nægur tími til að samþykkja málið, ef gengið hefði verið hvíldarlaust að verki.
Nú er það svo, eins og hv. þingdeild er kunnugt um, að hæstv. ríkisstj. hefur óskað eftir því, að málið væri tekið af dagskrá, og þess vegna hefur ekki verið hægt að koma því við að útkljá málið hér í hv. deild, og hefur það margsinnis verið tekið út af dagskrá. Ég hef sætt nokkru ámæli fyrir það sem forseti þessarar deildar, en ég get ekki tekið það ámæli á mig, því að það hefur aldrei verið ætlun mín að draga málið svo, að það fengi ekki afgreiðslu, og verði rökstudda dagskráin felld, þá er um nægan tíma að gera til þess að afgreiða málið. Ég get boðað það nú strax, að það verður til dæmis fundur í hv. deild á morgun, og þá verður málið á dagskrá, ef það verður ekki útkljáð í kvöld, en kvöldfundur verður, ef þessari umræðu verður ekki lokið fyrir þann tíma.
Hv. 4. þm. Reykv. þóttist verða var við dularfull fyrirbrigði hér í deildinni, þar sem ég sem nm. í fjhn. hefði mælt með því 17. jan., að frv. yrði samþ., en legði nú til, að það yrði afgr. með rökstuddri dagskrá. Ég held, að þetta sé alls ekki dularfullt fyrirbrigði og mörg fordæmi fyrir því, og jafnvel flm. frv. hafa oft sætzt á að afgreiða þau með rökstuddri dagskrá. Þetta fer nefnilega allt eftir því, hvernig rökstudda dagskráin er. Í rökstuddri dagskrá geta falizt fyrirmæli til stjórnarinnar, og í þessu tilfelli er það svo, að í dagskránni felast fyrirmæli til stjórnarinnar, sem í raun og veru ganga ekki einasta eins langt og frv., heldur lengra að sumu leyti, því að dagskráin er ekki eingöngu um smáíbúðir, heldur segir þar, með leyfi hæstv. forseta:
„Í trausti þess, að ríkisstj. hlutist til um, að leyfi til fjárfestingar til bygginga almennt verði rýmkuð ettir því sem þörf er á og tiltækilegt þykir og að framkvæmd 5. gr. laga nr. 70 5. júní 1947 verði nú þegar með þeim hætti, að leyfðar verði hindrunarlaust byggingar hagkvæmra smáíbúða og aðrar minni háttar byggingar, svo sem útihús í sveitum, verbúðir o. fl., tekur deildin fyrir næsta mál á dagskrá.“
En er nm. í fjhn. leggja nú fram þessa dagskrártill., þá er það sökum þess, að þeir þykjast hafa tryggingu fyrir því, að framkvæmd málsins verði betri með þessum hætti en að samþ. frumvarpið. Dagskrártill. er algerlega jákvæð, algerlega í sama anda og nefndarálitið frá 17. janúar. Þetta er því aðeins breyting á formi, en efnislega er þetta það sama og í frv., nema enn jákvæðara. Ég held því, að þetta dularfulla fyrirbæri sé alls ekkert dularfullt og hreint ekkert óvenjulegt.