31.10.1950
Efri deild: 12. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 194 í C-deild Alþingistíðinda. (3298)
52. mál, fræðsla barna
Viðskmrh. (Björn Ólafsson) :
Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. Barð. sagði, þá er ég sammála í því, að með þessu fyrirkomulagi hlýtur þingið að skipta fé til skólanna. En það, sem fyrir mér vakti, var það, að um leið og Alþ. veitir fé til nýs skólahúss, þá tekur það á sig ábyrgð að inna af hendi allar skynsamlegar greiðslur, til þess að það hús verði fullgert. Ef það verður ekki gert, þá verður hægt að halda áfram að binda ríkissjóði bagga, án tillits til þess, hvort hann getur staðið undir honum eða ekki. En það á að vera í hendi þingsins, hvaða byggingar það vill styrkja, en það er ekki meiningin að banna bæjar- eða sveitarfélögum að byggja fyrir sitt eigið fé, en ef þau vilja njóta hlunninda úr ríkissjóði, verður það að vera samþ. af Alþ. í upphafi. Ef þessi breyting verður samþ. hér, þá finnst mér eðlilegast, að fé, sem er varið í þessu skyni, komi til skipta, og mun ég senda n. till. um það.
Um greiðslu fyrir heimavist þá veit ég ekki betur en greitt sé fyrir heimavist í öllum skólum nema á Eiðum, en þar er hún nú ókeypis, en það stafar af því, að í sumar þegar gefin voru út fyrirmæli um slíka greiðslu, þá lét skólastjórinn þess getið, að hann hefði tilkynnt tilvonandi nemendum, að vistin væri ókeypis, svo að þessu var ekki breytt þar á þessu ári. Um heildartekjur af þessu er mér ekki kunnugt, en ég er reiðubúinn að láta fara fram rannsókn á því og láta fjvn. þær upplýsingar í té.
Um kennsluskyldu kennara er það að segja, að hún er 36 stundir á viku hjá barnakennurum og eitthvað minni hjá gagnfræðaskólakennurum og minnst hjá menntaskólakennurum. Við höfum látið athuga lög um þetta hjá Norðurlandaþjóðunum, og það kom í ljós, að þessu er mjög líkt háttað í Noregi, Svíþjóð og Danmörku, svo að athugun á því, hvort hægt sé að fjölga kennsluskyldustundunum, er ekki komin lengra, hvað sem verða kann. Ég viðurkenni það, sem hv. þm. Barð. sagði, að það eru mörg atriði í skólalöggjöfinni, sem þurfa mikillar athugunar. Það er dómur flestra þeirra skólamanna og annarra, sem til þessara mála þekkja og ég hef rætt þessi mál við, að á löggjöfinni séu ýmsir vankantar, sem þurfi lagfæringar við, en í svo umfangsmikilli löggjöf er ekki hægt að rjúka til og breyta einstökum atriðum, nema að vel athuguðu máli, og þá aðeins þeim atriðum, sem nauðsynlegt er að breyta. Það hafa verið gerðar nokkrar athuganir í þessum efnum, en ástæðan til þess, að ég hef enn ekki komið með neinar till. í þessum efnum, er sú, að slíkt er ekki hægt, nema að mjög vel athuguðu máli og slíkt sé mjög vel undirbúið áður. — Ég man ekki eftir fleiru, sem hv. þm. spurði eftir, en ég er fús til að veita allar þær upplýsingar, sem ég hef tök á, óski hann þess.