05.12.1950
Efri deild: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 205 í C-deild Alþingistíðinda. (3312)
52. mál, fræðsla barna
Hannibal Valdimarsson:
Herra forseti. Ég held, að hver, sem heyrði framsöguræðu hæstv. menntmrh., hafi getað sannfærzt um það, að fyrir honum vakti það eitt að reyna að stöðva þá skuldasöfnun ríkisins vegna skólabygginganna, sem átt hefur sér stað á undanförnum árum. Og þetta hugsaði hann sér að gert yrði með þeim hætti, að ríkissjóður væri ekki skyldugur að greiða framlag sitt til bygginganna, nema það hefði verið tekið inn á fjárlög, a. m. k. ekki á því ári. Þannig segir líka ótvírætt í frv. hæstv. ráðh.: „Ríkisframlagið er bundið því skilyrði, að fé hafi verið veitt á fjárlögum til sérhvers skólahúss, áður en hafizt er handa um bygginguna.“ Þá var einnig ljóst, að hæstv. ráðh. vildi ekki, að fræðslumálastjórnin skipti fénu, heldur væri það falið fjvn. — Þá var ráðh. einnig spurður að því, hvort ætlunin væri, að skólahús, sem reist væru án þess, að framlagið hefði komið til, fengju það þá aldrei. Því neitaði ráðh. og kvað alls ekki ætlazt til þess. Nú var honum bent á, að lagabreyting í þessa átt væri hliðstæð við vegafjárskiptinguna, en þar söfnuðust milljónaskuldir þrátt fyrir það fyrirkomulag við skiptinguna og því mundi sú tilhögun ekki heldur ná tilgangi sínum hér. Því var einnig haldið fram, að fjvn. væri ekki bærari um að gera upp á milli hinna ýmsu skóla en fræðslumálastjóri og menntmrh. Mér fannst líka, að hæstv. ráðh. yrði að viðurkenna það, að undarlegt væri af honum að fara fram á slíka lagabreytingu. Samt var það ljóst, að hann taldi, að megintilgangi sínum mundi vera náð með frv.
Nú vil ég reyna að gera það ljóst, sem mér virðist hv. þm. Barð. hafa misskilið í sambandi við fyrirkomulag það á fjárveitingunni, sem n. gerir ráð fyrir. — Féð verður veitt í einu lagi af fjvn. og Alþingi. Fræðslumálastjórnin býr svo á hverju ári til skrá um það, hvaða skólar komi til greina um fjárveitingu og í hvaða röð, og fjárveitingin skiptist eftir þessari framkvæmdaskrá. Nú getur tvennt verið til um þessar byggingar. Í fyrsta lagi eru þær, sem eru í uppsiglingu, fræðslumálastjórnin hefur samþykkt uppdrætti að, lóð hefur verið fengin og skólinn er komin á skrá. Á þá þessi skóli rétt á að fá sinn hluta af heildarfjárveitingunni. Svo er annar skóli, sem á að reisa og hefur fengið teikningar samþykktar og lóðin er eign skólahverfisins, en hann er ekki á framkvæmdaskrá fræðslumálastjórnarinnar og hefur því ekki enn öðlazt rétt til framlags ríkisins. — Þetta er breytingin, sem um er að ræða. Vitaskuld má slíkt skólafélag hefja byggingu, ef það hefur tök á, en það fær ekki framlagið fyrr en á þeirri stundu, er það er tekið á skrá og fullnægt er öllum hinum þremur skilyrðum. Þau þurfa að vera fyrir hendi, til þess að greiðsluskyldan falli á ríkið. Þetta held ég sé klárt og skýrt.
Um það hefur verið rætt við hæstv. ráðh., hvort það væri ætlun hans, að þær einar skólabyggingar, sem nú eiga fé hjá ríkinu, yrðu látnar sitja fyrir fjárveitingum og stöðvun yrði á nýjum byggingum, þar til áfallnar skuldir væru að fullu greiddar. Hæstv. ráðh. taldi þetta fjarstæðu. Hann viðurkenndi hins vegar, að það mundi taka mörg ár að fullnægja öllum þeim kröfum, sem þegar væru fallnar á ríkið. Og til að gera það öruggt, að þær skuldir stæðu ekki um of í vegi fyrir framlögum til nýrra bygginga, þá fór n. fram á, að þessum skuldaskilum yrði komið í fast form af hálfu ríkisins, t. d. með því að gefa út skuldabréf til 5 eða 10 ára. Hæstv. ráðh. kvað ríkisstj. mundu taka þetta til athugunar, og eftir undirtektum hans að dæma má búast við, að eitthvað af fénu verði tekið til lúkningar skuldum og hitt til nýrra bygginga, enda þótt ekki væri fallizt á að setja nein ákvæði um skuldaskilin inn í þetta frumvarp.
Ég held, að það sé nú ekki ástæða til að fjölyrða meira um þetta. Það má ljóst vera, að fjárveitingar eiga samkvæmt því, er ég hef nú rakið, að fara eftir því, hvort fullnægt er hinum þremur höfuðskilyrðum eða ekki. Þær byggingar, sem hafnar eru, þegar tveimur hinum fyrstu hefur verið fullnægt eingöngu, þær öðlast rétt til framlagsins, þegar því þriðja er fullnægt og þær hafa verið teknar á skrá fræðslumálastjórnarinnar. Ég játa, að það hefði verið æskilegt, að ráðh., jafnframt því sem málið var svo afgreitt, hefði fundið heppilegt form fyrir umræddum skuldagreiðslum ríkisins, þannig að öruggt væri, að lúkning þeirra yrði ekki látin ganga fyrir framlögum til nýrra skólabygginga. En hins vegar sé ég ekki, að þessi breyting gefi mönnum nokkuð undir fótinn með að ráðast í skólabyggingar, heldur sé með henni komið fastara formi á allt skipulag þessara mála. Hefji einhver byggingu, eftir að þetta liggur fyrir, þá gengur hann að því með opnum augum, að hann fær ekki féð fyrr en öllum skilyrðum er fullnægt og hann er kominn á skrá. Það er hins vegar tómur misskilningur, sem ég heyrði hv. þm. Barð. halda fram,, að n. hefði dottið í hug að svipta þá skóla, sem bygging væri hafin á, án þess að skilyrðum fyrir framlaginu væri fullnægt, réttinum til að fá það nokkurn tíma, og því neitaði hæstv. ráðh., að það væri tilgangur sinn. Það er skilningur nm., að slíkt komi ekki til greina.
Ég óttast ekki, að fræðslumálastjóri sé vinveittur einstökum skólahverfum, heldur megi byggja á því, að menntmrh. og fræðslumálastjóri hagi sínum till. um byggingarframkvæmdir skólanna eftir því, sem þeir telja þörfina vera á hverjum stað. Fræðslumálastjóri upplýsti, hvaða skóla hann telur aðkallandi að byggja næst, og það er mjög óhlutdrægt mat, sem hann leggur á þá hluti, þ. e. þar sem vantar skóla og þar sem kennt er í samkomuhúsum, þar sem er ófullkomin farkennsla og þar sem hægt er að leysa þörfina með byggingu elns heimavistarskóla fyrir marga hreppa. Þetta eru þau rök, sem fræðslumálastjóri gerði grein fyrir og hann leggur til grundvallar fyrir þörfinni til byggingar nýrra skólahúsa. Ég tel engan aðila eins færan um að meta slíka aðstöðu eins og fræðslumálastjóra. Ég þekki ekki núverandi fræðslumálastjóra, en ég hygg, að hann hafi enga löngun til þess að beita einstök fræðsluhéruð ranglæti og láta þau sitja á hakanum, en trana fram öðrum, sem engan rétt eiga.
Ég vil vænta þess, að einhverju af þeim misskilningi, sem hv. þm. Barð. byggir á, sé eytt og hann falli frá því, að rík þörf sé á að fresta umr., því að það gæti tafið málið, og þó að þetta frv. — og þessi frv. — hæstv. ráðh. leysi ekki mikinn vanda, þá tel ég samt, að það bæti nokkuð úr, og teldi það skaða, ef afgreiðsla þess tefðist svo, að það fengi ekki afgreiðslu á þessu þingi.