08.12.1950
Efri deild: 32. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 218 í C-deild Alþingistíðinda. (3325)
52. mál, fræðsla barna
Gísli Jónsson:
Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. dómsmrh. fyrir þá lagaskýringu, sem hann gaf hér í d.
Þá vil ég leyfa mér að bera fram eina fsp. í sambandi við þetta mál, til þess að fá enn ljósara yfirlit yfir, hvað deilt er um í málinu. Hv. menntmn. hefur margsinnis lýst því yfir, að hún meini það með sínum brtt., að hverju sveitarfélagi verði tryggt, sem byggir skóla og hvenær sem það byggir, hvort heldur það fær fé af fjárl. eða ekki, en uppfyllir önnur skilyrði, að fá fé úr ríkissjóði eftir því sem l. ákveða. Hins vegar hefur hæstv. menntmrh. ekki lýst yfir, að hann hafi þessa skoðun. Hann hefur miklu frekar lýst yfir, að ef frv. verði samþ. óbreytt, sé meiningin, að enginn skóli fái nokkurn styrk úr ríkissjóði fyrr en búið sé að fá samþykki til að byggja og fé af fjárl., og ef eitthvert sveitarfélag tæki sig til og færi að byggja án þess að uppfylla ákveðin lagafyrirmæli, yrði það að gera það á sína ábyrgð og missti réttinn til að fá það fé, sem það annars átti að fá úr ríkissjóði. — Ég vildi leyfa mér að spyrja hæstv. dómsmrh. um hans skoðun á málinu. Skilur hann það svo, ef frv. er samþ. óbreytt, eins og það liggur fyrir við 3. umr., að þá haldi sérhvert sveitarfélag fullum rétti til þess á sínum tíma, þegar fé er veitt til þess á fjárl., að fá þann hluta, sem ákveðinn er í l., þ. e. helming stofnkostnaðar heimangönguskóla, en þrjá fjórðu hluta stofnkostnaðar heimavistarskóla? Það er þetta, sem deilt er um. Ef það er skoðun hæstv. dómsmrh., að þessi réttur sé tryggður með samþykkt frv., eins og það liggur nú fyrir, er hann á sömu skoðun og hv. menntmn., en á gagnstæðri skoðun við hæstv. menntmrh. En hæstv. menntmrh. bar þetta frv. fram til þess að stöðva skuldasöfnun ríkissjóðs, en hún er ekki stöðvuð, ef þessir aðilar halda sínum rétti og halda áfram að byggja skólana. Um þetta atriði vil ég fá hreinar línur.
Mér þykir það hins vegar leiðinlegt, að öll afstaða n. og ræða hv. 11. landsk. þm. (ÞÞ) byggðist á hreinum misskilningi í sambandi við till. okkar hv. þm. S-Þ. Þessi misskilningur stafar af því, að þessir aðilar halda því fram, að fjvn. óski eftir að úthluta fénu. Ég get fullvissað þá um það, að í n. hefur aldrei verið nokkur tilhneiging í þessa átt, og það er leiðinlegt, þegar slíkur misskilningur kemst inn í mál, sem verður til þess, að afstaðan verður allt önnur en hún átti að vera. Ég get fullvissað hv. þm. um það, að hvað eftir annað hefur því verið skotið til úrskurðar fjvn., að hún taki að sér að skipta þessu fé, en henni hefur aldrei dottið í hug að gera það, af því að hún hefur talið fræðslumálastjóra bezt til þess fallinn á allan hátt. Hins vegar gat n. tekið þetta í sínar hendur hvenær sem var og getur jafnt þótt þetta frv. verði samþ. nú. Ég vil því lýsa yfir, að till. okkar er ekki fram borin af þeim ástæðum, að við ætlumst til, að fénu sé skipt í fjvn., og sé ég enga þörf á að gera það, þótt till. okkar verði samþ.
Ég vil í þessu sambandi benda á sams konar fyrirmæli og hér er um að ræða, sem eru í hinum almennu hafnal., en þar segir svo, með leyfi hæstv. forseta: „Ríkissjóður greiðir hluta af kostnaði við hafnargerðir og lendingarbætur á þeim stöðum, sem taldir eru í l. þessum, og í þeim hlutföllum, sem þau ákveða, enda séu áætlanir um framkvæmdir allar samþykktar af samgöngumálaráðuneytinu, eignir og tekjur hafnar- eða lendingarbótasjóðs ekki fullnægjandi til þess að standa undir byggingu hafnarinnar eða lendingarbótanna og fé veitt til þess í fjárlögum.“ Nú get ég vel ímyndað mér, að hv. þm. álíti, að þessu fé sé skipt af fjvn., en því er ekki þannig varið. Á hverju ári veitir Alþ. 1 millj. kr. til þess að uppfylla þetta ákvæði, og fjvn. kemur ekki nálægt því að skipta fénu. Það er skoðun þeirra manna, sem með þessi mál fara, að ef leyft er að byggja höfn með samþykki ríkisstj., á hún kröfu á að fá framlag greitt, þegar fé er veitt til þess á fjárl., og ef reynt er að byggja meira en látið er á móti af fjárveitingum Alþ., verður viðkomandi aðili sjálfur að bera ábyrgðina, og um kröfur um óreiðuskuldir er ekki að ræða. Nákvæmlega hið sama á að gilda um skólabyggingar. Það getur engin ríkisstj. í dag krafizt þess, að hafnarframkvæmd sé stöðvuð, ef uppfyllt eru öll skilyrði, sem ákveðin eru í hafnal., og ríkissjóður á að greiða henni sitt framlag á næsta ári. Það takmarkast af þessu, að ég vil fá inn í l., að þetta sé ekki gert nema þegar fé er veitt til þess á fjárl. Þess vegna finnast mér lögskýringar hæstv. dómsmrh. á þessu atriði — því miður — út í hött og ekki í samræmi við það, sem hefur verið föst regla í sambandi við hafnarframkvæmdir, og þess vegna er till, okkar komin fram.
Í dag er það svo, að ríkissjóður telur sig ekki skyldugan að greiða sveitarfélögunum vexti af vangoldnum framlögum til skólamála. Ef farið verður inn á till. hv. frsm. og n. um að taka stórt lán til þess að greiða þetta, tekur ríkissjóður þar með á sig vaxtabyrðina, en ég hef þann skilning á l., að hann sé ekki skyldugur til að koma hér á móti, nema fé sé fyrir hendi og það samþ. af Alþ. Hitt væri viðurkenning á því, að ríkissjóður ætti þegar að greiða upphæðirnar, ef farið væri inn á að taka lán. Það álit ég rangt, vegna þess að þegar l. voru samþ., árið 1946 — á miklum peningatímum — var gengið allt of langt í því, er snertir hlutfallið í framlögum ríkissjóðs, sem er ástæðan fyrir því, að þetta ástand hefur skapazt.
Ég tel óverjandi, ef á að koma vaxtabyrðinni af 75% fjárframlagi á ríkissjóð, og tel einnig óverjandi, ef sveitarfélögin glata rétti sínum til fjárframlaga úr ríkissjóði til skólabygginga, sem þeim hefur verið þröngvað til að takast á hendur til að uppfylla ákvæði skólal.
Þá er það algerlega rangt að álíta, að till. okkar sé komin fram vegna ofurkapps eða ímyndaðs valds, til þess að fjvn. eigi að framkvæma úthlutun á þessu fé, sem n. hefur aldrei dottið í hug að taka að sér. Fyrir fjvn. hafa á hverjum tíma legið skýrslur frá fræðslumálastjóra um þessi mál og hvað hver skóli skuldar, og í sambandi við yfirgang fjvn., sem hv. 11. landsk. þm. talaði um, vil ég taka það fram, að n. hefur aldrei úthlutað neinu fé, hvorki í brýr, vegi né hafnargerðir, nema eftir ákveðnum till. frá viðkomandi mönnum, sem með þessi mál fara, sem sé vegamálastjóra og hafnar- og vitamálastjóra, og með fullu samkomulagi við þessa aðila.
Þá sagði hæstv. forseti, hv. þm. Eyf., að hann treysti betur einum embættismanni til að fara með þessi mál heldur en Alþ. Nú eru ekki nema 9 þm. í fjvn., og allur þingheimur getur tekið valdið af fjvn. í hvert skipti sem álitið er, að hún beiti rangsleitni, og eins er um till. hennar, sem standast gegnum umr., að meiri hl. hv. þm. verður að vera þeim samþykkur.
En hver hefur orðið reynslan um úthlutun fjár til vega- og hafnarmála? Það hefur hvað eftir annað verið hafin sókn á fjvn. um, að vegaframlögin væru látin ganga óskipt til ákveðinna vega í sterkum og fjölmennum héruðum og dreifbýlið þannig skilið út undan. Því hefur hvað eftir annað verið lýst yfir, m. a. af Emil Jónssyni vitamálastjóra, fyrrv. samgmrh., að hann vildi láta fjárframlögin til hafnarmála ganga óskipt til þess að ljúka ýmsum stórhöfnum. Það hefur verið deilt mjög á fjvn. fyrir að vilja ekki loka augunum fyrir þörfum dreifbýlisins, og ef Alþ. hefði farið inn á þá stefnu, sem hæstv. forseti d. vill fara inn á, væri búið að þurrka út svo og svo mikið af dreifbýlinu í landinu. Ríkisstj. er þeirrar skoðunar, að það sé miklu ódýrara og hagkvæmara að láta féð ganga til stórframkvæmda í sambandi við vega- og hafnarmál á ákveðnum stöðum í fjölbýlinu og mest kringum Reykjavík. Hitt er annað atriði, eins og hæstv. dómsmrh. sagði, að það hafi verið kvartað yfir því, að Reykjavík hafi verið höfð út undan með fé til skólamála. Fjvn. hefur aldrei viljað skipta sér af þeirri úthlutun, og það hefur verið upplýst hér, að þótt n. hefði tekið hana að sér, þá hefði það engu breytt í málinu. Öll afstaða n. og sérstaklega ræða hv. 11. landsk. þm. byggist því á hreinum misskilningi og getgátum.
Það, sem fyrir mér vakir, er það, að ég vil tryggja, að sérhvert sveitarfélag, sem byrjar á skólabyggingu og hefur uppfyllt öll önnur skilyrði en það að fá fjárveitingu á næsta ári, glati ekki rétti sínum til að fá sinn ákveðna hluta í fjárframlögum, þegar fé er veitt til þess á fjárl. Mér dettur ekki í hug, að nokkur ríkisstj. eða Alþ. misnoti svo vald sitt, að það láti þau ekki fá þetta fé. Ég vil ekki, að tekin verði upp sú regla, að ráðh. geti sagt: Ég ætla að loka fyrir allar nýbyggingar til skóla, og hver sá, sem byrjar byggingu, verður að gera það á sinn kostnað, án þess að fá rétt til fjárframlags síðar meir, eins og hæstv. menntmrh. tilkynnti í fyrstu ræðu sinni í þessu máli. Hins vegar hefur hv. menntmn. lýst því hér yfir, að hæstv. ráðh. hafi fallið frá þessu og sagt n., að hann ætli ekki að framkvæma þetta þannig, en sjálfur hefur hann ekki lýst því yfir hér á Alþ., að hann hafi þá skoðun á málinu, og þegar sú skoðun staðfestist hér, þá er skuldasöfnunin ekki stöðvuð og sannleikurinn sá, að ekkert vinnst með frv. eða till n., og er því eins hægt að taka till. aftur og sjálft frv. — Annars var það athyglisvert, sem hæstv. dómsmrh. sagði, að það eru ýmis önnur ákvæði l., sem þarf að gera breyt. á, en það er annað máli.