19.10.1950
Neðri deild: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 229 í C-deild Alþingistíðinda. (3371)

12. mál, hvíldartími háseta á togurum

Flm. (Finnur Jónsson) :

Herra forseti. Málið um hvíldartíma háseta á íslenzkum botnvörpuskipum er orðið nokkuð gamalt, því að fyrstu lögin um þetta efni voru sett árið 1921. Ástæðan til þeirrar lagasetningar er öllum kunn, því að vitað er, að á þeim tíma var vinnutími hásetanna oft 60–70 klukkustundir samfellt, og stundum féllu hásetarnir sofandi niður í fiskikösina eða köstuðu sveðjunum útbyrðis, og stundum munu þeir hafa meitt sig á þeim, er þeir sofnuðu við vinnuna úrvinda af þreytu. Við þennan þrældóm entust ungir og hraustir menn ekki nema 6 til 8 ár, en voru eftir þann tíma orðnir útslitin gamalmenni löngu fyrir aldur fram. Þegar fyrstu togaravökulögin voru sett, var verkalýðshreyfingin ekki mikils megnug, en þó fengu röksemdir Alþfl. áheyrn hjá öðrum þingflokkum, og ákvæðin um 6 stunda hvíld voru lögfest. Það reyndist þó þegar of lítið, og árið 1928 fékkst samþykkt 8 stunda hvíld á togurunum. Um og eftir síðustu styrjöld breyttist vinnutíminn í landvinnu mjög, svo að almennt var vinnudagurinn 8 klukkustundir, en á sjónum hélt hann áfram að vera óbreyttur. Þó var sums staðar ákveðinn lágmarkshvíldartími á vélbátum, en yfirleitt var það ekki og alls ekki á togurunum. Það hefur sem sagt lengi loðað við sú gamla trú, að það fiskaðist betur því lengur sem staðið væri við vinnuna og því minni sem hvíldin væri. Í landvinnu trúa menn ekki þessari bábilju. Menn sjá, að nú er unnið eins mikið á 8 tímum og áður á 12–14 tímum. En þetta hafa menn ekki viljað viðurkenna, þegar um sjómennsku hefur verið að ræða. Þegar togaravökulögin voru sett árið 1921, þá kvað alltaf við sú mótbára, að útgerðin þyldi þetta ekki. Um þetta eru í þingtíðindum rækilegar ræður frá ágætum og greindum fulltrúum togaraeigenda, sem trúðu þá þessari bábilju. Ég hirði ekki um að nefna nöfn látinna manna, en áreiðanlega er einhver lifandi og hér nærstaddur, sem þessu hefur haldið fram í alvöru. Þegar lögin frá 1928 voru sett, kvað við sama tón. — Nú á undanförnum þingum hafa verið fluttar hér á Alþingi till. um 12 stunda hvíld á togurunum. Af hálfu hæstv. ríkisstj. var á sínum tíma gerð tilraun til að leiða saman togaraeigendur og sjómenn til frjáls samkomulags. Þetta var gert með því að skipa þar til samninganefnd árið 1947. Í nefndina völdust ágætir menn, og af hálfu ríkisstj. voru þeir Jónatan Hallvarðsson og Torfi Hjartarson skipaðir til að reyna að leiða málsaðila til samkomulags. En gamli draugurinn var enn upp vakinn, og útgerðarmenn héldu því fram, að togaraútgerðin þyldi ekki afkomu sinnar vegna að hafa styttri vinnutíma, aflinn mundi minnka, og fjölga yrði hásetum. Nú mundi þessi deila enn geta staðið, ef ekki vildi svo vel til, að kveðinn hefur verið upp dómur í málinu. Það hafa verið teknar upp 6 stunda vaktir á sumum togurum á saltfisksveiðum á þessu ári og eins á ísfisksveiðum við Bjarnarey, og reynslan varð sú, að skipstjórarnir álitu hásetana afkasta eins miklu með tveimur 6 stunda hvíldum og áður með 8 stunda hvíld. Það þarf því ekki að fara í grafgötur með það, að fyrir útgerðina er þessi aðferð ekki síður hagkvæm en fyrir sjómenn, og fyrir hásetana er þetta brýnt heilsuverndarmál. Hér fara því saman hagsmunir beggja. Þegar þetta er athugað, verður að harma það, að þetta fyrirkomulag skyldi ekki lögfest á síðasta þingi. En það er nú sannað orðið, að þeir, sem hafa haldið fram gömlu hjátrúnni um það, að afköstin yrðu mest með stöðugum, löngum vinnutíma, hafa ekki haft rétt fyrir sér. Á síðasta Alþingi kom fram sú mótbára gegn frv., að þetta ætti að vera samningsatriði sjómanna og útgerðarmanna. Nú er það svo um vinnudeilur, að eftir því sem deiluatriðin eru fleiri, eftir því verða deilurnar lengri og harðari. Það var því stórt spor til að stytta líklega vinnudeilu að nema burt eitthvað af ágreiningsefnunum. Í hinni löngu vinnudeilu nú er deilt bæði um kaup og vinnutíma, og deiluefnið hlaut að bera í sér, að deilan yrði bæði löng og erfið. Ef hv. alþm. hefðu samþ. þetta frv. á síðasta þingi, þá eru allar líkur til þess, að núverandi togaradeila hefði orðið mun styttri. Þá hefði verið tekið í burtu, báðum í hag, annað stærsta deiluatriðið, sem hér er á ferð. En þetta var því miður ekki gert, en Alþingi á enn kost á því að taka þetta atriði burt, og það ætti það að gera, svo að það yrði ekki deiluefni í framtíðinni. Ég hef lagt þetta frv. fyrir í sama formi og á síðasta þingi, sem sagt að lögboðnar skuli 4 sex stunda vaktir, en ekki 12 stunda hvíld, eins og í frv. á þskj. 11, því að það held ég sé óheppilegra. — Hef ég svo ekki lengri framsögu fyrir frumvarpinu.