19.10.1950
Neðri deild: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 236 í C-deild Alþingistíðinda. (3381)

14. mál, gengisskráning o.fl.

Flm. (Gylfi Þ. Gíslason):

Herra forseti. Kaupgjald er nú greitt samkv. vísitölu júlímánaðar, sem var 115 stig að viðbættum 0.75 stigs til uppbótar á, að í sumar var greitt lægra kaupgjald en rétt var samkv. þágildandi vísitölu. Vísitala í október verður 123 stig, eða 8 stigum hærri en sú vísitala, sem launagreiðslur miðast nú við. Það munar Dagsbrúnarverkamann 154 kr. á mánuði (grunnkaup 1921.92 kr.). Launþegi, sem hefur 2500 kr. í mánaðarkaup, tapar 200 kr. á mánuði við það, að miðað er við vísitölu 115 í stað 123.

Það er kunnara en frá þurfi að segja, að í 6. gr. gengisskráningarlaganna er gert ráð fyrir, að launagreiðslur til ársloka 1950 miðist við vísitölu júlímánaðar s. l. Síðan skal miðað við vísitölu desember n. k. til miðs árs 1951, en úr því er ekki gert ráð fyrir breytingum. Rökin fyrir þessum ákvæðum eru aðallega tvenns konar. Í fyrsta lagi: Það var talið nauðsynlegt að tefja fyrir verðhækkunum svo að gengislækkunin kæmi útflutningsatvinnuvegunum að sem mestu gagni. Talið var, að nokkurn tíma þyrfti til að gengislækkunin kæmi atvinnuvegunum að fullum notum, og ekki æskilegt að íþyngja þeim með verðhækkunum fyrr en séð væri, að gengisfellingin hefði haft sín áhrif. — Í öðru lagi var því haldið fram, að launþegar gætu borið byrðar verðhækkunarinnar, sem yrði umfram kauphækkunina, þar eð heildarverðhækkunin yrði lítil, aðeins 11–13 stig, gnægð vöru yrði á boðstólum og næg atvinna. Þessi rök fá ekki staðizt, eins og ástand er nú. Verðhækkanir hafa orðið miklu meiri en talið var, auk þess sem aðrar ástæður hafa valdið því, að gengisfellingin hefur brugðizt, svo að aðrar ráðstafanir eru nauðsynlegar hvort sem er. Þau rök, að launþegar geti borið verðhækkunina, vegna þess hve lítil hún sé, fá ekki staðizt, þar sem hækkunin hefur numið 23 stigum í stað 11 stiga, eins og spáð var. Spádómar gengislækkunarflokkanna hafa algerlega brugðizt, því að í stað vörugnægðar er nú vöruskortur meiri en áður og atvinnuleysi meira en á þeim tíma, sem gengislækkunin fór fram.

Þau rök hafa heyrzt, að ekki sé hægt að bæta verðhækkunina að fullu vegna þess, að hún sé meiri en búizt var við, þar eð verðlag erlendrar vöru hafi hækkað meira en gera mátti ráð fyrir vegna gengislækkunarinnar. Er sagt, að lofað hafi verið því einu að bæta þá verðhækkun, er hljótast mundi af gengislækkuninni, en ekki sé hægt að ætlast til, að utanaðkomandi verðhækkun sé bætt. Þannig munu bráðabirgðalög ríkisstj. í sumar m. a. hafa verið rökstudd, sbr. ummæli Björns Ólafssonar í útvarpsræðu, með leyfi hæstv. forseta, en þar segir svo:

„Verðhækkanir þær, sem stafa af gengisbreytingunni, eru nú að mestu fram komnar. Vísitala næsta mánaðar mun komast upp í 120–121 stig að líkindum. En þá er líka verðhækkunaralda gengisbreytingarinnar risin að fullri hæð, eða því sem næst. Þær verðhækkanir, sem eftirleiðis koma fram vegna gengisbreytingarinnar, verða mjög litlar, en hins vegar geta breytingar orðið vegna verðhækkunar á erlendum markaði. — Þessi hækkun vísitölunnar er meiri en gert var ráð fyrir í hinni hagfræðilegu álitsgerð, sem fylgdi gengislögunum. — Kemur þar tvennt til. Beina hækkunin af gengisbreytingunni er meiri en gert var ráð fyrir. Vöruverð á erlendum markaði hefur hækkað í ýmsum greinum, og hefur það haft áhrif til hækkunar á vísitölunni, sem ekki var gert ráð fyrir.“

Þessi ummæli hæstv. viðskmrh. hafa verið skýrð svo, að verðhækkunin hljóti að eiga rót sína að rekja til erlendra verðhækkana. Ég hef gert athugun á því, í hverju hin 23 stigahækkun vísitölunnar sé fólgin.

Niðurstaðan er þessi:

Kjöt og slátur

1.8

stig

Mjólk og feitmeti

4.3

Kartöflur og garðávextir

1.2

Samtals er hækkunin á innlend-

um landbúnaðarafurðum 7.3 st.

Fiskur

0.4

Kornvörur

3.0

Nýlenduvörur

3.0

þar af kaffi og kaffibætir 1.4 stig

Smjörlíki

0.1

Fatnaður

3.8

Eldsneyti og ljósmeli

1.7

þar af hitaveita og rafmagn 1.1 st.

Húsnæði .

0.9

-

Ýmislegt (búsáhöld)

3.0

-

Samtals

23.2

stig

Ég hef enn fremur gert lauslega athugun á, hvað þessara verðhækkana á rót sína að rekja til verðhækkana erlendis, þ. e. verðhækkana umfram það, sem búast mátti við vegna gengislækkunarinnar:

Kornvörur

0,25

stig

Nýlenduvörur

0.86

-

Eldsneyti og ljósmeti

0.10

-

Samtals

1.21

stig

Ekki er reiknuð með hækkun á rekstrarkostnaði landbúnaðarins, en hún getur ekki skipt miklu máli.

Vefnaðarvara og ýmis kostnaður (búsáhöld, tóbak) hafa hækkað minna en gera mátti ráð fyrir. Stafar það af því, að þessar vörur hafa ekki flutzt til landsins, og hefur verið notuð innlend framleiðsla ódýrari, en jafnframt verri. Nemur það :

Vefnaðarvara

0.9

stig

Ýmislegt

0.2

Samtals

1.1

stig

Mismunurinn, 0.1 stig, er sú verðhækkun, sem orðið hefur meiri en gera mátti ráð fyrir vegna gengisbreytingarinnar. Þetta sýnir ótvírætt, að erlend verðhækkun á ekki þátt í þeirri vísitöluhækkun, sem fram hefur komið. Hún er bein og ábein afleiðing gengislækkunarinnar. Athyglisvert er, að 1/3 vísitöluhækkunarinnar stafar af verðhækkun á innlendum landbúnaðarafurðum.

Vegna þess, sem ég hef tekið fram, eiga launþegar siðferðislegan rétt á fullri uppbót fyrir þessi 23 stig, sbr. loforðin í vor. Og launþegar geta ekki beðið, þar sem verðhækkun hefur orðið miklu meiri en gert var ráð fyrir og horfur í atvinnumálum eru nú verri. Það skal fúslega játað, að almennar launahækkanir eru varhugaverðar og koma launþegum sem heild ekki að því gagni, sem virðist í fljótu bragði, því að þeir taka mestan hluta hækkananna, 2/3 til 3/4, hver af öðrum. En launþegar eiga, því miður, einskis annars úrkosta. Ef talið er, að launahækkanir stefni útflutningi landsins í hættu, er það á valdi ríkisstj. og Alþingis að sporna við því, að hækkanir verði. Með þessu er ekki verið að fara fram á almenna grunnkaupshækkun, heldur að staðið sé við þau loforð, sem gefin voru, að launþegar fái bætta beina og óbeina kjaraskerðingu vegna gengislækkunarinnar. Það er einungis farið fram á, að loforð ríkisstj. verði efnd.

Ég sé ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en óska eftir, að frv. þessu verði vísað til fjhn.