19.10.1950
Neðri deild: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í C-deild Alþingistíðinda. (3386)
14. mál, gengisskráning o.fl.
Stefán Jóh. Stefánsson:
Herra forseti. Það eru aðeins örfá atriði, sem ég þarf að taka fram, þar sem ekki er þörf að bæta við rök hv. 3. landsk. fyrir frv. okkar. Ég vildi fyrst og fremst andmæla þeim ummælum hæstv. viðskmrh., að Alþfl. og verkalýðssamtökin í landinu, sem eru honum nátengd, hafi gert sitt til að rífa niður árangurinn af gengisbreytingunni á s. l. vori. En því fer fjarri, að svo sé. Bæði Alþfl. og þeir, sem með honum standa, voru sammála um, að rétt væri, að það fengi reynslu, hvort það fengi staðizt. En flokkurinn hafði vantrú á, að það næði tilgangi sínum, og sú vantrú reyndist því miður rétt. En sökum þess, að menn vildu, að reynd kæmi á, hvort frv. fengi staðizt, var ekki farið út í kaupdeilur. Þetta vildi ég segja út af ræðu hæstv. viðskmrh., en raunar má finna meginrökin fyrir frv. okkar í grg. gengislækkunarfrv., en þar stendur á bls. 51, með leyfi hæstv. forseta: „Tilgangurinn með ákvæðum þessa liðs er sá að bæta öllum launþegum þá hækkun á framfærslukostnaði, sem hlýzt af gengislækkuninni, nema þar sem hún hækkar laun þeirra sjálfkrafa.“ Og við næstu greinaskil: „Gert er ráð fyrir, að aðaláhrif gengislækkunarinnar muni koma fram á fyrstu þrem mánuðunum, og þykir því rétt að veita launþegunum fulla uppbót fyrir þá verðhækkun.“ — Nú var svo, að aðalverðhækkunin var ekki komin eftir þrjá mánuði, eins og gert er ráð fyrir í grg., því að síðasta vísitala, sem launauppbót var greidd eftir, var 115 stig, en nú er hún 122 stig, svo að hækkunin nemur þegar 7 stigum. Við töldum því rétt, að gengið væri eftir loforði því, sem gefið er í rökstuðningi fyrir frv. — Þá segir í grg. frv., að rétt þyki að áætla 6 mánuði til jafnvægismyndunar í þessum efnum, en nú eru ekki aðeins liðnir þeir 6 mánuðir, sem þeir töldu þurfa til jafnvægismyndunar, heldur 7 mánuðir, svo að nú ætti að vera komið það jafnvægi á, sem þeir töldu að mundi koma. Það er því fullljóst, að gengislækkunarfrv. hefur ekki staðizt, eins og við raunar héldum fram að ekki mundi verða. En þeim, sem töldu að veita bæri fulla launauppbót eins og kemur fram í grg. fyrir gengislækkunarfrv., ber að greiða frv. okkar atkvæði. En svo kom fram í ræðu hv. 3. þm. Reykv., sem talaði mjög skilmerkilega, eins og hans er vandi, að gengislækkunin hefði ekki verið nógu mikil og þyrfti meira til að nægja. En það var einmitt þetta, sem við óttuðumst. Og nú er það komið fram, að álit hagfræðinganna stenzt ekki, og ég vil undirstrika það, sem við höfum raunar sagt áður, að allar þessar ráðstafanir stjórnarflokkanna hafa mistekizt. Ég vil svo að lokum taka tvennt fram, að nauðsynlegt er að greiða lágmarksuppbót á laun eins og lofað er í grg. gengislækkunarfrv. og við förum nú fram á, og að játað hefur veríð, að það, sem gert var með gengisbreytingunni, hafi ekki verið nægilegt.