19.10.1950
Neðri deild: 5. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 245 í C-deild Alþingistíðinda. (3387)
14. mál, gengisskráning o.fl.
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Ég get skilið vonbrigði Alþfl., þegar ég heyrði orð hv. síðasta ræðumanns, hafi hann skilið lagasetninguna s. l. vor þannig, að ekki þyrfti frekar að skipta sér af gengismálum. En mér þykir ólíklegt, að mikil alvara sé á bak við þau orð, að þeir, sem stóðu að gengisbreytingunni, hafi talið, að hér væri um eitthvert fullnaðarúrræði að ræða, sem ekki þyrfti að breyta, og ekki hvað sízt á slíkum tímum aflabrests og markaðsvandræða. — Út af fyrirspurn minni vil ég taka það fram, að það var algerlega farið í kringum hana. En það er fullljóst, að Alþfl. stóð með því, þegar hann var í ríkisstj., að bilið milli kaupgjalds og verðlags óx, en hann stóð fyrir því sem kunnugt er að vísitalan var bundin við 300 stig, en verðbólgan hélt þó áfram. Og ef litið er í þingtíðindin, má áreiðanlega sjá þess vott, að alþýðuflokksmenn hafa ekki alltaf haldið því fram, a. m. k. ekki á meðan þeir voru í ríkisstj., að nauðsyn væri að kaupgjald og verðlag héldust algerlega í hendur. Ég held, að það sé erfitt að sanna, að fólk standi ekki með álögum eða vilji ekki taka á sig byrðar af því, að Alþfl, er ekki í ríkisstj. Og það er staðreynd, að Alþfl. viðhélt meira bili milli kaupgjalds og verðlags, þegar hann var í ríkisstj., heldur en nú á sér stað.