12.01.1951
Neðri deild: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 273 í C-deild Alþingistíðinda. (3444)

69. mál, sjúkrahús o.fl.

Helgi Jónasson:

Ég hef ekki miklu við það að bæta, sem ég sagði áðan. En það kann að vera gert fullmikið úr þessari sérstöðu á Siglufirði í frv. og af þeim, sem tala með því hér. Við höfum skýrslur um það, hvað margir utanhéraðssjúklingar eru fluttir á Siglufjörð, og þar eru aðrir staðir miklu hærri, svo sem Akureyri, Seyðisfjörður o. fl., ef á að fara í þann samanburð. Það er svo með Siglufjörð, að þangað sækja að vísu mörg skip um stuttan tíma yfir sumarið, en það er langflest ungt fólk og hraust, sem síldveiðar stundar, og það er minna hætt við slysum af vosbúð og kulda þá en á öðrum tímum ársins, enda er reynslan sú, að á Siglufirði er sjúkrahúsþörf sáralitil þrátt fyrir hina miklu mergð skipa. Ég er þess fullviss, að bæði í Vestmannaeyjum, við Faxaflóa og á Patreksfirði er sjúkrahúsþörfin miklu brýnni, þangað sækir fólk haust-, vetrar- og vorvertíð lengri tíma og fjöldi skipa, og á þeim tíma ársins, sem hættast er við slysum og sjúkdómum.

Ég er þess fullviss, að ef Alþ. er búið að samþ. Siglufjörð, þá er ekki hægt að segja nei við hina kaupstaðina. Ég fyrir mitt leyti get fallizt á, ef ríkissjóður hefur bolmagn til þess, að greiða hærra tillag til annarra sjúkrahúsa, en meðan ástandið er þannig, að við eigum ófullgerð sjúkrahús í Reykjavík og annars staðar og alls konar hæli, sem nauðsyn er að fá upp, og allt stendur fast vegna fjárskorts, þá finnst mér einkennilegt að vera að bæta við það og auka framlögin meðan ekki er hægt að standa við það, sem nú er í l. Eins og ég tók fram áðan, þá er enginn greiði gerður þeim bæjar- og sveitarfélögum, sem fá þennan lagabókstaf, ef ekki er hægt að inna þessi framlög af hendi af hálfu ríkissjóðs.