28.11.1950
Neðri deild: 30. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 274 í C-deild Alþingistíðinda. (3459)
93. mál, atvinnuleysistryggingar
Flm. (Sigurður Guðnason):
Herra forseti. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um þetta mál, því að það er þegar kunnugt, hve mikið nauðsynjamál hér er um að ræða, og nægir í því sambandi að vísa til grg. þeirrar, sem fylgir frv. Ég mun því ekki ræða þetta frekar á þessu stigi málsins, en mun gera það síðar, ef tilefni gefst til. — Ég óska svo eftir, að því verði að lokinni þessari umr. vísað til hv. félmn. og til 2. umr.