08.12.1950
Neðri deild: 34. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 275 í C-deild Alþingistíðinda. (3463)

125. mál, lækkun tekjuskatts af lágtekjum

Flm. (Einar Olgeirsson) :

Herra forseti. Ég hafði búizt við því, að hæstv. ríkisstj. mundi flytja frv. í sömu átt og þetta frv., sem hér er lagt fram. — Eins og hv. þm. muna, þá kom fram stjfrv. á síðasta þingi um, að veita skyldi sérstaka tilslökun á tekjuskatti af tekjum, sem væru 20 þús. kr. eða lægri, álögðum 1950, og það samsvaraði að gefa eftir þriðjunginn af slíkum tekjuskatti. Það er ekki efa bundið, að það er eins mikil þörf á slíkri eftirgjöf fyrir almenning nú á þessu ári, sem í hönd fer, og jafnvel meiri. Ég hef þess vegna leyft mér, þó að ég að öðru leyti hafi tekið upp orðalag stjfrv. frá í fyrra, að hækka þarna upp í 25 þús. kr. það takmark teknanna, sem miðað sé við. En frv. um þetta, sem þýðir nokkra eftirgjöf á þungum álögum almennings, sem erfiðast á með að bera þær, var ekki komið fram. Ég veit þess vegna ekki, hvort það var meiningin hjá hæstv. ríkisstj. að koma með frv. um þetta og að aðeins hafi ekki unnizt tími til þess eða yfirsézt að leggja fram frv. um þetta aftur nú, og þess vegna hef ég leyft mér að bera fram þetta frv. Ég vona, að það hafi verið tilgangur hæstv. ríkisstj., að þessi tilslökun ætti að gilda líka fyrir næsta ár, og að þetta frv. geti því orðið samþ. hér, hvort sem upphæðin fengist nú ákveðin sú eða ekki, sem ég hef lagt til, að miðað sé við, þ. e. a. s. 25 þús. kr. tekjuhámarkið.

Ég óska, að þessu frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til 2. umr. og hv. fjhn.