19.02.1951
Neðri deild: 71. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í C-deild Alþingistíðinda. (3486)
128. mál, Iðnaðarbanki Íslands
Forseti (SB):
Það er rétt, sem hv. þm. Hafnf. sagði, að málið hefur iðulega verið tekið af dagskrá; en það er ekki vegna þess, að forseti hafi viljað selja fót fyrir það. En þar sem form. iðnn. er ekki viðstaddur, þá verður orðið við þeim tilmælum hv. þm. V-Húnv. að fresta málinu enn að þessu sinni. En það skal líka verða tekið á dagskrá þegar á næsta fundi.