23.02.1951
Neðri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 282 í C-deild Alþingistíðinda. (3493)

128. mál, Iðnaðarbanki Íslands

Bjarni Ásgeirsson:

Ég sé ástæðu til að segja nokkur orð um þetta mál, áður en það fer út úr deildinni, vegna þeirra umr., sem hér hafa farið fram í d. um málið, og blaðaummæla um þær, og ekki sízt vegna ummæla, sem fallið hafa í sambandi við till. til þál., sem við hv. þm. V-Húnv. fluttum í Sþ. Í umr. um þá þáltill. var því slegið föstu af sumum hv. þm., að sú afstaða, sem við hv. þm. V-Húnv. tókum til málsins, sýndi ekkert annað en fjandskap okkar til þessa máls og löngun okkar til að berjast á móti aukinni lánsfjárveitingu til iðnaðarins. Nú er það upplýst, að þegar málið var flutt, létu flm. á sér skilja, að þeir gerðu ekki ráð fyrir, að málið næði fram að ganga á þessu þingi. Þessu hefur ekki verið neitað. Því var það, að við hv. þm. V-Húnv. töldum þá rétt að óska eftir því, að borin yrði fram till. til þál. í Sþ., þar sem skorað væri á ríkisstj. að undirbúa þetta lánsfjármál iðnaðarins fyrir næsta þing. Það sjá því allir, að það er síður en svo fjandskapur við málið að taka þann kostinn að skora á ríkisstj. að hefja undirbúning þess, í stað þess að fylgja till., sem auðséð var, að mundi daga uppi hér á þinginu. Það má að sjálfsögðu deila um það, hvor leiðin hafi verið heppilegri, en ég neita því, að sú leið, sem við völdum, sýni nokkurn fjandskap við málið. Og ég ætla, að okkar leið hafi verið fyllilega jafnæskileg fyrir heppilegan framgang þessa máls. Nú þegar þinginu lauk ekki fyrir jól, þá risa flm. upp aftur nú og segja, að vonir séu til þess, að málið gangi í gegnum þingið, áður en því ljúki, og frá þeim tíma hef ég ekki lagt stein í götu þess, og et Alþ. hefði vilja til að koma því áfram, þá gæti það gert það fyrir mér og okkur hv. þm. V-Húnv. Því vil ég neita því eindregið, að afstaða okkar hafi stjórnazt af fjandskap til þessa máls, og ég vil segja hv. þm. Hafnf., sem fór stórum orðum um afstöðu okkar, að ég efast um, að hann hafi meiri trú á íslenzkum iðnaði en ég, enda þótt ég viti, að hann er mikill iðnaðarfrömuður. Mér er mjög vel ljóst, að iðnaðurinn hlýtur að verða einn af þremur aðalatvinnuvegunum, sem framtíð þessa þjóðfélags á að byggjast á, bæði í efnalegum og atvinnulegum skilningi. Og ég valdi þá leið mína að óska eftir því, að ríkisstj. tæki málið til athugunar á milli þinga, eingöngu vegna þess, að ég held, að sú leið muni verða málinu meiri frambúðarstyrkur en fylgi við þetta frv. — Ég sá ástæðu til að taka þetta fram vegna ummæla hér og í blöðum í sambandi við afstöðu okkar hv. þm. V-Húnv. til þessa máls.