23.02.1951
Neðri deild: 74. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 287 í C-deild Alþingistíðinda. (3498)
128. mál, Iðnaðarbanki Íslands
Emil Jónsson:
Herra forseti. Eins og ég hef þegar tekið fram, þá hafa iðnaðarmenn haft þetta í mörg ár til athugunar. Það er búið að athuga það gaumgæfilega og frá öllum hliðum, og fengnir hafa verið aðstoðarmenn, sem færir eru frá banka-teknisku sjónarmiði, og niðurstaðan hefur orðið sú, sem í þessu frv. felst, og þess vegna er rétt að afgreiða það án þess að telja það með athugunum, sem eru algerlega óþarfar.