11.01.1951
Neðri deild: 47. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 289 í C-deild Alþingistíðinda. (3510)
137. mál, fasteignamat
Jörundur Brynjólfsson:
Herra forseti. Ég býst við,að það kunni að vera þörf á því, að athugun fari fram á gildandi fasteignamati, sakir þeirra breyt., sem orðið hafa í ýmsum verklegum efnum víðs vegar um landið, breyttum aðstæðum til nota af fasteignum, breyttu verðmæti þeirra og því, sem þær gefa af sér. Ber að taka tillit til alls þessa, þegar ákveða skal verðmæti eignanna, en það er einmitt hægurinn hjá, þegar slíkar breytingar verða og átt hafa sér stað í landinu undanfarin ár, að leiðrétta slíkt um leið og matið er gert. Eins og hæstv. fjmrh. tók fram, er ástæða til að taka til íhugunar fasteignamat á eignum í landinu eins og það er skráð nú, vegna þess, hversu háttað er um framkvæmd skattálagningar og hversu misjafnt það kemur niður vegna þess, hversu fasteignamatið hallar frá réttu. Að þessu leyti er ég sammála hæstv. ráðh. um nauðsyn þess, að nýtt mat fari fram.
Hitt finnst mér miklu fremur íhugunarvert, hvort nú skuli breyta um framkvæmd á mati, hvort rétt sé að hverfa frá því, sem ætið hefur verið grundvallaratriði um framkvæmd matsins, sem sé sú nákvæma rannsókn, sem fram hefur farið á hinum ýmsu svæðum í landinu og ekki er á annarra færi en þeirra, sem nákunnugir eru. En þetta frv. gerir ráð fyrir, að horfið sé frá þessari nákvæmu rannsókn, því að nú er lagt til, að einungis þrír menn hafi matið með höndum. Ég hygg, að það sé ekki ofmælt, þó að sagt sé, að það sé á engra þriggja manna færi að framkvæma matið, sem byggt þarf að vera á nánum kunnugleika og þekkingu, til þess að rétt verði og vel fari. Að vísu er svo mælt fyrir í þessu frv., að þegar þessi þriggja manna n. hafi látið gera skrá yfir mat allra fasteigna í landinu, með þeim breyt., sem orðið hafa frá því að síðasta mat fór fram og að meðtalinni ræktun og húsabótum frá þeim tíma, þ. e. 1942, þá skuli hún senda skrána um fasteignamatið með áorðnum breytingum til viðkomandi hreppa og bæjarfélaga, sem síðan skipi svo n. til þess að athuga þetta, gera till. um breyt. á því, ef þörf þykir á. Gera má ráð fyrir, að út frá þessu kunni að mega færa eitthvað til réttari vegar, að tekið verði tillit til þeirra till., sem þessar n. úti á landi kunna að gera, og vera má, að þessi þriggja manna n. taki tillit til þeirra breyt., sem kunna að koma utan af landi. Fyrir fram er þó ekki víst, að það verði gert, og engin trygging er fengin fyrir því. Þessir menn, sem þetta verk eiga að vinna úti um byggðir landsins, hljóta að hafa miklu meiri kunnugleika á hinum einstöku fasteignum, hver í sínu byggðarlagi. Þess vegna má gera ráð fyrir, að af þeirra hálfu komi till., sem byggist á staðbetri þekkingu en hægt er að ætlast til að komi af hálfu þessara þriggja manna, en þó skortir öryggi fyrir því, að tekið yrði tillit til þeirra till., sem kæmu frá þessum mönnum úti um land. Ég held allra hluta vegna, að það væri langskynsamlegast, að till. um breyt. á fasteignamatinu kæmu einmitt frá þessari undirnefnd samkv. frv., þ. e. að þeir gerðu upprunalega till. um þessar breyt., en síðan kæmi matsn. sem nokkurs konar yfirfasteignamatsn. og samræmdi till. undirn. og gerði þá breyt., ef henni sýndist óhjákvæmilegt að láta fara fram leiðréttingu á matinu. Ég held, að þetta yrðu öruggustu vinnubrögðin og þau heppilegustu.
Ég get vel skilið hæstv. ráðh., að honum hrjósi hugur við því fyrirkomulagi, sem ég hef talað um núna, ef af því ætti að leiða, að borga ætti öllum þessum n. úti á landi úr ríkissjóði þá fyrirhöfn, sem af þessum verkum mundi leiða. Í þessu frv. er gert ráð fyrir, að viðkomandi bæjar- og sveitarstjórnir annist þessar greiðslur, ef til kemur, og get ég fallizt á þá till., því að ég er sammála hæstv. ráðh. um það, að það að setja þetta á kostnað ríkisins gæti orsakað, að það yrði miklu minni ávinningur við þetta allt saman, og get ég því fallizt á, að kostnaður við þessar undirn. úti á landi yrði ekki greiddur úr ríkissjóði, til þess að spara kostnað og gera málið sem einfaldast og kostnaðarminnst fyrir ríkissjóð. — En ef þessar n. úti á landi eiga að vanda sitt verk, verða þær að kynna sér hinar einstöku breytingar, sem átt hafa sér stað síðan fasteignamat fór síðast fram, t. d. þær framkvæmdir, sem gerðar hafa verið síðan í túnrækt, framræslu o. fl. Landsn. getur tæplega haft við annað að styðjast en skýrslur, sem gefnar hafa verið Búnaðarfélagi Íslands og borizt hafa t. d. frá hinum ýmsu ræktunarfélögum um jarðræktarframkvæmdir úti um land, og þá getur landsn. tæplega annað en tekið þann tilkostnað, sem orðið hefur á hinum einstöku jörðum, — getur tæplega gert annað en fært það inn á matið að miklu eða öllu leyti. En eins og allir vita, stendur mjög misjafnlega á í þessum efnum. Má í því sambandi t. d. minnast á framræslu, sem ef til vill hefur aðeins verið byrjað á og er dýr og fjárfrek, en getur ekki gefið neitt í aðra hönd upp í þann tilkostnað, enn sem komið er. Þá er tæplega gerlegt að leggja þetta til grundvallar fyrir skattálagningu og öðru slíku, fyrr en þá einhver not verða af framkvæmdunum. En það er ekki á neinna manna færi að dæma um slíkt nema þeirra, sem náinn kunnugleika hafa í hinum einstöku héruðum.
Ég sé nú ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta. Ég vildi benda á þessi atriði og vænti þess, að n., sem fær málið til meðferðar, taki þau til athugunar.