16.01.1951
Neðri deild: 50. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 308 í C-deild Alþingistíðinda. (3518)
137. mál, fasteignamat
Bjarni Ásgeirsson:
Ekki ætla ég að fara að deila hér við hv. þm. A-Húnv., en ég get sagt eins og hann, að ég sá ekki frv. fyrr en hér í Alþ. Ég get vel skilið, að það þurfi að gerbreyta matsatriðum frá því, sem nú er í frv. Ég held, að nauðsynlegt sé að bæta við einum fulltrúa frá hverri sýslu í þá nefnd, sem hefur fasteignamatið með höndum, til þess að tryggja samræmi í matinu. Þetta held ég að sé nauðsynlegt. Þetta frv. getur því orðið grundvöllur að nýju fasteignamati með einhverjum breytingum. Þetta er raunverulega endurskoðun á núverandi fasteignamati, eins og algerlega er heimilt samkvæmt lögum um fasteignamat frá 12. apríl 1945, og segir svo,, í 1. gr.: „Nú breytist verðgildi peninga að verulegu leyti milli þess, að aðalmat fer fram, og má þá með lögum ákveða breytingu á matsverði allra fasteigna í landinu í samræmi við það.“ Þetta eru þau lög, sem þetta frv. er byggt á, og getum við vel, ef við viljum, kallað þetta nýtt fasteignamat eða aðeins aukamat. Það skiptir auðvitað ekki máli. Aðalfasteignamat á nú að fara fram á 25 ára fresti.
Hv. þm. A-Húnv. þótti það stórt skref stigið, ef fjórfalda ætti allt fasteignamatið. Ég sló þessu fram og gerði ráð fyrir, að útkoman yrði sú, að ferfalda fasteignamatið, og ég hygg, að það sé einmitt bráðabirgðamat, sem lagt var til grundvallar í sambandi við stóreignaskattinn, og þetta átti ég við í minni síðustu ræðu. Ég verð þó að segja það, að þótt reynt hafi verið að stefna til réttlætis í lögum um stóreignaskattinn með margföldun fasteignamatsins, þá er þar ógurlegt handahóf, t. d. að fasteignamat á húsi á Seltjarnarnesi er þretaldað, en hér í Reykjavík sexfaldað, — þó eru þarna e. t. v. ekki nema nokkrir metrar á milli húsa. Alveg hið sama er að segja í Kópavogi og nágrenni Hafnarfjarðar. Hvernig væri svo hægt að leiðrétta þetta fasteignamat með því að margfalda vitleysuna? Með því móti yrði enn þá meira ranglæti og enn þá meiri vitleysa í fasteignamatinu. Sumar fasteignir seljast nú allt frá löglegu fasteignamati og upp í 12–15-falt fasteignamat. Svo mismunandi er nú söluverð fasteigna. Hvernig er svo hægt að hugsa sér að halda þessu fasteignamati fram til 1965? Það nær ekki nokkurri átt. Það var gripið til neyðarúrræða í sambandi við stóreignaskattinn, og þó var reynt að hafa mismunandi margfeldi.
Hv. þm. A-Húnv. talaði um, að langt væri frá því, að hann væri ánægður með fasteignamatið, þótt hann vildi byggja á grundvelli núverandi fasteignamats. Þetta skil ég mætavel, og ég held það verði alltaf svo, að aldrei verði allir ánægðir með hið sama. Það sýnist hverjum sitt í þessu eins og öðru. — Þá hafði hv. þm. það að athuga við þetta frv., að til skyldi kveðja hreppsnefndir og bæjarstjórnir til að yfirfara mat landsnefndarinnar. Þetta ætti að falla í hlut skattanefndanna, sagði hv. þm. — Ég vil þá segja, að þetta mundi fremur eiga heima hjá hreppsnefndunum en hjá skattanefndunum. En það er mín skoðun, að til þessa starfs eigi fremur að kveðja fulltrúa frá sýslufélögunum en frá hreppsnefndum og bæjarstjórnum. — Þá þarf ég ekki að fara að deila við hv. þm. um kostnað sveitar- og bæjarfélaganna í þessu sambandi, því að bann er enginn. Hann var allur greiddur úr ríkissjóði.