05.03.1951
Neðri deild: 82. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 314 í C-deild Alþingistíðinda. (3525)

137. mál, fasteignamat

Pétur Ottesen:

Ég hreyfði hér í deildinni athugasemdum við frv. þetta, sem er um endurskoðun fasteignamatsins frá 1942, við 1. umr. þess og benti á, eins og frá var gengið í upprunalega frv., að þá væri ákvörðunin um matið ekki viðhlítandi, því að þar yrði að koma til sanngjarnt mat jarða og hlunninda af mönnum, sem því eru kunnugastir. Á þetta benti ég. Nú hefur hv. fjhn. tekið þetta að nokkru til greina, því að samkv. brtt. hennar, sem nú eru komnar hér fram, á að haga fasteignamatinu á svipaðan hátt og undanfarið og skipa 3 menn í hverju sýslu- og bæjarfélagi til að annast það. En mér dylst ekki, að samkv. því, sem maður þekkir til í sveitum landsins, þá er starfsemi þessara þriggja manna allt of þröngur stakkur skorinn. Það er ætlazt til, að þeir hafi 12 vikur til starfsins. Þessu starfi mun alls ekki verða lokið á l2 vikum, þ. e. a. s. á þeim grundvelli, sem ég vil og tel rétt og nauðsynlegt að verði. Þess vegna ná þessar brtt. ekki þeim árangri, sem ég tel, að þær þurfi að gera. Þess vegna þarf hér enn meiri athugunar við. Það má vera, að ekki verði nauðsynlegt, að matsmenn fari inn á hvert heimili, en a. m. k. verða þeir að fara í hvern hrepp og kynna sér framfarir og ýmsar breytingar, sem orðið hafa á hinum einstöku jörðum, m. a. með tilliti til sölumöguleika á afurðum jarðarinnar o. s. frv.

Ekki er ástæða til þess að fara mjög gaumgæfilega í þessi atriði hér, því að auðséð er, að þetta mál nær ekki fram að ganga á þessu þingi, því að störfum þess mun ljúka á morgun eða miðvikudag, og því fæst engin endanleg niðurstaða í málinu. En auðvitað geta þessar umræður og athugun þessa máls haft þýðingu fyrir undirbúning málsins síðar. Það er ekki samkv. minni skoðun, að leggja eigi til grundvallar fasteignamatinu þær verðbreytingar, sem orðið hafa á peningum, heldur eigi að sannprófa verðgildi fasteignanna sjálfra, t. d. hvað þær gefa af sér í sveit. Viðvíkjandi mati á húsum vil ég benda á þann reginmun, sem er á verðgildi húsa í sveit og í kaupstað. Það er algengt, að þegar vel er byggt upp á sveitajörð, þá verður sá, sem það gerir, að afskrifa 1/3 eða 2/3 kostnaðarverðs miðað við það, sem hægt er að selja eignina fyrir. Í kaupstöðunum eru hús alltaf að hækka í verði, og það verður að taka tillit til slíkra aðstæðna, og það verður að hyggja á því í fasteignamatinu, hvert kaup- og söluverð húsanna er á hverjum stað. Hins vegar er ég sammála n. og þakklátur henni fyrir að hafa tekið upp það ákvæði, að fasteignaskatturinn skuli renna til bæjar- og sveitarfélaga. Þessi félög þurfa á tekjustofnum að halda, og hér er áreiðanlega stefnt í rétta átt, en hitt virðist þá ekki ósanngjarnt, að sá kostnaður, sem af þessu verður, verði fyrst tekinn af fasteignaskattinum, sem sé að fasteignaskatturinn verði látinn bera uppi fasteignamatið. Hitt getur svo verið álitamál, hvort heppilegt sé, að bæjarfélögin innheimti þennan skatt sjálf. Það gæti verið hagkvæmt, að sýslumenn innheimti þennan skatt ásamt öðrum gjöldum, en þetta er nú fyrirkomulagsatriði.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 778 hef ég það við þær að athuga, að ég álít, að ekki sé til sá grundvöllur undir nýjum fasteignaskatti, sem þar er gert ráð fyrir að á verði lagður, og skírskota ég þar til þess, sem ég hef áður sagt um frv. þetta og þá tillögun, sem ég álít nauðsynlega sem grundvöll fyrir þær breytingar, sem eiga að verða frá því að síðasta fasteignamat fór fram. Að því leyti tel ég þessum till. það áfátt. Að vísu eru þarna undantekningarákvæði, en þau, sem hér um ræðir, eru eingöngu afréttarlönd, hús, sem ekki eru notuð, jarðir, sem eru illa settar hvað samgöngur snertir. Í þessu efni er ekki gert ráð fyrir, að fasteignir hækki. En það er svo stigmunur að tvö- og þrefalda matið eða hins vegar, að engin hækkun eigi sér stað, og ég býst við, að et gert væri það, sem ég vildi, þá yrði fjöldi jarða, þar sem farið væri bil beggja. Í fasteignamatslögunum er ekki ráðgert, að fram fari millimat nema á nýjum húsum, og er ekki gert ráð fyrir, að endurmat taki að neinu leyti tillit til ræktunarframkvæmda. Nú eru ekki neinar sérstakar ástæður þar, sem betur fer, og þá er ekki gert ráð fyrir, að millimat taki til þeirra framkvæmda eins og nú er háttað. Ég sé því ekki, að það sé ákaflega brýn nauðsyn að hækka fasteignamatið í sveitum. En það má vel vera, að sú hækkun, sem yrði á skattinum í stærstu kaupstöðunum, gæti orðið einhver hemill á sölu fasteigna þar. Í kaupstöðum hefur orðið óeðlileg hækkun á húsaverði öllu, sem í sveitum er ekki fyrir hendi. Að vísu hefur þar orðið nokkur hækkun, sem byggist á auknum endurbótum, og ef slíkt er ekki til staðar né heldur náttúrugæði, þá eru þær jarðir að verða óseljanlegar, því að ekki er þá hægt að reka þar búskap með nútímafyrirkomulagi. — Ég sé ekki ástæðu til að vera að reka á eftir fasteignamatinu, þótt það horfi nú öðruvísi við, þar sem skatturinn á að koma þeim til góða, sem eiga sjálfir heima í viðkomandi byggðarlagi, þar sem skatturinn er á lagður.

Hv. þm. A-Húnv. og hv. 2. þm. Skagf. eru á sömu skoðun í sínum till. um það, að skatturinn skuli renna til bæjar- og sveitarfélaga, og er það því betra sem fleiri sjá þetta, að svo þyrfti að vera um fleiri tekjulindir, sem renna til ríkisins, að þær ættu að renna til sveitarfélaganna, enda er nauðsynlegt, að ríkið sjái af einhverju til þeirra, vegna þess að skattagrundvöllur þeirra er ákaflega þröngur, en þau eiga í vök að verjast, ef eitthvað bregður út af í atvinnuefnum sveitarinnar.