16.01.1951
Neðri deild: 50. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 318 í C-deild Alþingistíðinda. (3533)
140. mál, atvinnustofnun ríkisins
Flm. (Gylfi Þ. Gíslason) :
Herra forseti. Við þingmenn Alþýðuflokksins í þessari hv. deild flytjum á þskj. 343 frv. til l. um Atvinnustofnun ríkisins. Það er ekki ofmælt, að nú eru horfur uggvænlegar í atvinnulífi landsmanna og uggvænlegri en fyrr. Undanfarin ár hafa Íslendingar átt kost á sæmilegri vinnu. Nú hefur þetta breytzt. Má í þessu sambandi minna á umræðurnar, sem fóru hér fram fyrir skömmu um atvinnuleysi og neyðarástand í Flatey á Breiðafirði.
Þegar svona horfir, ber brýna nauðsyn til að grípa þegar til gagnráðstafana, sem verða mættu til að koma í veg fyrir, að atvinnuleysið aukist eða breiðist út. En það eitt er þó ekki nóg. Einnig þarf að gera ráðstafanir til þess að tryggja skynsamlega hagnýtingu vinnuaflsins, sem fyrir er. Það má ekki líðast, að vinnuafl sé hálfnotað eða illa notað, og það getur vel verið, að vinnuaflið notist ekki vel eða skynsamlega, nema gerðar séu sérstakar ráðstafanir ti.l þess. Segja má, að það séu aðallega 3 flokkar ráðstafana, sem fyrst og fremst þurfi að gera til að tryggja skynsamlega hagnýtingu vinnuaflsins:
1. Ráðstafanir á sviði opinberra fjármála, þ. e. að ríkisvaldið miði fjármálastefnu sína og bankarnir útlán sín við það, að öll atvinnutæki og allt vinnuafl sé hagnýtt, án þess þó að efnt sé til verðbólgu.
2. Ráðstafanir í fjárfestingar- og innflutningsmálum til þess að tryggja þeim framkvæmdum vinnuafl, innlent fjármagn og erlendan gjaldeyri, sem nauðsynlegastar eru taldar frá sjónarmiði heildarinnar, og til þess að halda uppi atvinnu þar, sem þess gerist sérstök þörf.
3. Ráðstafanir, sem stuðla að hreyfanleik vinnuaflsins, svo sem vinnumiðlun, vinnuþjálfun, leiðbeiningar um stöðuval o. fl.
Ríkisvaldið íslenzka hefur skilyrði til þess að haga fjármálastefnu sinni og bankanna þannig, að verða megi til þess að tryggja fulla atvinnu í landinu. Það hefur einnig skilyrði til þess að gera ráðstafanir í innflutnings- og fjárfestingarmálum til þess að stuðla að fullri atvinnu. Í gildandi lögum eru ríkisvaldinu hins vegar veitt tiltölulega fá skilyrði til þess að gera ráðstafanir, sem stuðla að hreyfanleik vinnuaflsins með vinnumiðlun, vinnuþjálfun og því líku. Árið 1936 voru að vísu selt lög um vinnumiðlun, og átta árum áður höfðu verið sett lög um atvinnuleysisskráningu, sem áttu að tryggja, að jafnan væri fyrir hendi nokkurt yfirlit yfir, hvernig vinnuaflið væri hagnýtt. Síðan 1936 hefur verið gert ráð fyrir því, að vinnumiðlunarskrifstofur safni skýrslum um ástand vinnumarkaðsins. En önnur atriði í sambandi við hagnýtingu vinnuaflsins hafa mjög verið vanrækt. Það hefur t. d. verið algerlega vanrækt hingað til að gera ráðstafanir af hálfu hins opinbera til þess að nota vinnuafl öryrkja. Enginn vafi er þó á því, að ónotað vinnuafl öryrkja í landinu er mjög mikið og að auka mætti þjóðartekjurnar mjög verulega með því að hagnýta það skynsamlega, auk þess sem lífsviðhorf öryrkjanna sjálfra mundi breytast og lífsvon þeirra styrkjast, ef þeir fengju verkefni við sitt hæfi.
Fyrir 2 árum voru gerðar hér í Reykjavík athuganir af tryggingayfirlækni Tryggingastofnunar ríkisins á atvinnugetu öryrkja. Athugaðir voru 738 öryrkjar, og í ljós kom, að 175 þeirra töldust vel vinnufærir. Þeir hefðu getað unnið mjög margs konar vinnu, en þá vantaði skilyrði til þess. Það vantar stofnun, sem geti gert þeim kleift að vinna og hagnýtt þannig vinnuafl þeirra. Á vinnuheimilinu í Reykjalundi hefur fengizt mjög mikilvæg reynsla á þessu sviði, og þar hefur verið leitt ótvírætt í ljós, hvílíkum geysiárangri má ná, ef forsjálni og fyrirhyggju er beitt. Vinnuheimilið í Reykjalundi hefur starfað í 6 ár, og þar eru nú um 90 vistmenn, og þeir vistmenn, sem þar hafa dvalið þessi 6 ár, hafa framleitt vörur fyrir 8 millj. kr., á síðasta ári fyrir 1.8 millj. kr. Það var aðeins tap á rekstrinum fyrsta árið, síðan hefur alltaf verið hagnaður. Hagnaður verkstæðanna, sem þarna hafa verið rekin, hefur frá byrjun numið 700 þús. kr., en hins vegar hefur auðvitað verið halli á heimilisrekstri stofnunarinnar, en í heild hefur gróðinn samt verið 360 þús. kr. þessi 6 ár. Þó fá vistmenn svipað kaup og greitt er hér í Reykjavík, en greiða 60 vinnustundir á mánuði fyrir uppihald. Auk þess greiðir ríkið með um helming vistmanna, þeim, sem eru smitberar. Mánaðarlegar nettótekjur karlmanna nema um 700 kr., eftir að þeir hafa greitt uppihald sitt. Þeir vinna 6 tíma á dag.
Hér hefur þegar verið sannað, að hagnýting á vinnuafli öryrkja er ekki aðeins mikilvæg til að greiða fyrir afturbata þeirra og auka lífsþrótt þeirra, heldur getur það verið beint fjárhagsatriði fyrir þjóðarbúið í heild. Það er vissulega ekki smávægilegt, að vinnuheimili með 90 vistmönnum skuli hafa framleitt söluvörur fyrir 8 millj. kr. á 6 árum. Þegar tillit er tekið til þess, að hér í Reykjavík eru um 1000 öryrkjar, er það augljóst mál, að hér bíður gífurlegt verkefni úrlausnar. Lausn þess hefur bæði félagslega og fjárhagslega þýðingu. Það, sem gera þarf til þess að fá öryrkjunum verkefni, er að koma upp vinnuheimili í líkingu við Reykjalund. Enn fremur þarf að taka upp vinnuþjálfun. Margir, bæði öryrkjar og aðrir, geta oft ekki gengið að starfi, nema þeir fái undirbúning með sérstakri þjálfun, og þá mun vinnukraftur þeirra nýtast betur.
Það má heldur ekki dragast miklu lengur, að komið verði á fót stofnun, sem veltir leiðbeiningar um stöðuval. Slíkar stofnanir eru í öllum nágrannalöndum og þykja mjög þýðingarmiklar. Það er örlagaríkt, ekki aðeins fyrir einstaklinginn, heldur og þjóðfélagið, ef menn og þó einkum unglingar velja sér störf, sem samsvara ekki hæfileikum þeirra. Það getur valdið einstaklingnum óhamingju og reynzt þjóðfélaginu dýrt.
Það má heldur ekki við svo búið standa, að ekki séu gerðar ráðstafanir til að hagnýta vinnuafl unglinga betur en nú er gert, einkum af því, að tekið er að bóla á atvinnuleysi. Unglingar hafa á undanförnum árum getað fengið vinnu vegna skorts á vinnuafli, en nú er þetta að breytast. Það er ekki aðeins nauðsynlegt frá uppeldissjónarmiði, heldur einnig frá þjóðfélagslegu sjónarmiði, að unglingar gangi ekki atvinnulausir á sumrin, er þeir sitja ekki á skólabekk.
Þá er og nauðsyn að koma betri skipun en verið hefur undanfarið á söfnun atvinnuleysisskýrslna. Einnig er nauðsynlegt, að hér verði tekið að semja launaskýrslur, eins og tíðkast alls staðar í nálægum löndum.
Vinnumiðlun þarf enn fremur að efla frá því, sem verið hefur, en því miður virðist það stefna núverandi ríkisstj. að draga beinlínis úr vinnumiðlun. Hér hefur verið til meðferðar í þessari hv. deild og afgr. frá henni í gær frv. um vinnumiðlun, sem veldur því vafalaust, að dregið verður úr vinnumiðlun frá því, sem verið hefur undanfarið.
Við flutningsmenn þessa frv. teljum, að það sé kominn tími til að koma á fót sérstakri stofnun, sem annist þau mikilvægu verkefni, sem ég hef hér gert að umtalsefni, einkum af því, að svo er komið, að tekið er að bóla á atvinnuleysi, og enn fremur vegna þess að það virðist vera stefna hæstv. ríkisstj. að draga úr ýmsum félagslegum ráðstöfunum, sem þegar hafa verið gerðar. Vegna þessa höfum við, þm. Alþfl. í þessari deild, borið fram þetta frv. um að koma á fót Atvinnustofnun ríkisins, sem hafi þessi verkefni:
1. Skráningu allra vinnufærra manna og samningu launaskýrslna.
2. Atvinnuleysisskráningu.
3. Vinnumiðlun.
4. Leiðbeiningar um stöðuval.
5. Vinnuþjálfun.
6. Öryrkjavinnu.
7. Unglingavinnu.
8. Úthlutun atvinnubótafjár.
Af öllum þessum verkefnum atvinnustofnunarinnar vil ég sérstaklega vekja athygli á nauðsyn þess að skipuleggja öryrkjavinnuna. Hér er um að ræða svo mikilvægt verkefni, að alls ekki má bíða lengur, að á því sé tekið með festu og hafnar séu framkvæmdir, eins og ég reyndi að leiða rök að áðan með því að nefna þær tölur, sem ég nefndi um fjölda öryrkja og þá reynslu, sem fengizt hefur í Reykjalundi.
Ýmsir kunna að segja, að nú sé ekki réttur tími til að koma á fót nýrri ríkisstofnun, þar sem kostnaðurinn hlyti að verða verulegur. En þeim mönnum, sem þannig hugsa og tala, vil ég benda á, að það er miklu dýrara að láta vinnuaflið ónotað eða illa notað heldur en leggja í nokkurn kostnað til að tryggja fulla og skynsamlega hagnýtingu þess. Þess vegna rakti ég svona rækilega starfsemi vinnuheimilisins í Reykjalundi, að þar hefur verið leitt i ljós, að það er ekki kostnaður fyrir þjóðina að reka slíka starfsemi, heldur gífurlegur þjóðfélagslegur hagnaður. Ef komið yrði á fót fleiri slíkum stofnunum og þannig hagnýtt vinnuafl þeirra 300–400 öryrkja, sem beinlínis bíða eftir að fá verkefni við sitt hæfi, þá væri, með tilliti til reynslunnar á Reykjalundi, hægt að gera ráð fyrir því, að þessir öryrkjar mundu geta framleitt verðmæti fyrir um 25 millj. kr. og skilað hagnaði, sem nálgaðist 1 milljón kr.
Það er því algerlega röng skoðun að líta á þau verkefni, sem hér er um að ræða, eingöngu frá því sjónarmiði, að það hafi kostnað i för með sér fyrir ríkissjóð. Ég endurtek, að ekkert er eins dýrt og að láta vinnuafl þjóðarinnar ónotað. Þó að ráðstafanir til þess að tryggja fulla og skynsamlega hagnýtingu þess kunni að kosta nokkuð, þá eru það peningar, sem skila sér margfaldlega aftur.
Í grg. frv. er að því vikið, að flm. þess telja vel geta komið til mála að fela Tryggingastofnun ríkisins framkvæmd þeirra meginverkefna, sem stofnunin ætti að taka að sér, ef ókleift þætti að koma á fót sérstakri stofnun til að annast þessi mál. Frá sjónarmiði okkar er það ekki aðalatriði, hvort komið verður á fót sérstakri stofnun til að annast þessi verkefni eða hvort Tryggingastofnun ríkisins verður falið nokkuð af þeim. Aðalatriði er, að það verði ekki látið dragast öllu lengur að hefjast handa um aðgerðir á þessu sviði. Það er nauðsynlegt að stórbæta atvinnuleysisskráninguna frá því, sem nú er, nauðsynlegt að stórauka vinnumiðlun frá því, sem nú er, og nauðsynlegt að koma upp stofnun, sem hagnýtir vinnuafl öryrkja. Það verður líka að koma upp stofnun, sem þjálfar öryrkja og unglinga til vinnu, sem þeir gætu ekki framkvæmt án sérstakrar þjálfunar. Það er enn fremur nauðsynlegt, að sérstakar ráðstafanir verði gerðar til þess að því fé, sem veitt kann að verða til atvinnubóta, verði vel og skynsamlega varið.
Fyrir okkur er það aðalatriði, að sem fyrst verði hafizt handa um ráðstafanir á þessu sviði, og við erum sannfærðir um, að ekki getur liðið á löngu, unz hafizt verður handa. Dæmið úr Reykjalundi hlýtur t. d. að opna augu æ fleiri manna fyrir því, hve dýrt það er að hagnýta ekki vinnu þeirra 300–400 öryrkja, sem vinnufærir eru víðs vegar um landið.
Svo leyfi ég mér að óska þess, að frv. verði að lokinni þessari umr. vísað til heilbr: og félmn.