29.01.1951
Neðri deild: 57. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í C-deild Alþingistíðinda. (3543)

141. mál, innflutningur búfjár

Frsm. minni hl. (Jón Sigurðsson) :

Herra forseti. Þegar lögin um innflutning búfjár voru sett 1948, var leitazt við að tryggja, að búfjársjúkdómar flyttust ekki til landsins. Það var um það deilt, hvort leyfa ætti að flytja inn dýr og greiða þannig götuna fyrir sjúkdómum. Niðurstaðan varð sú, að þessi innflutningur var ekki leyfður þá, og nál. minni hl. er byggt á sömu rökum og þá. Mönnum er þó enn í dag mjög minnisstætt, hvílíkt afhroð innflutningur búfjár hefur valdið þjóðinni og hversu margar milljónir það hefur kostað ríkissjóð. Þegar þetta er athugað, ætti þetta að vera nægileg viðvörun að gæta nú að sér og slaka ekki í neinu á þeim böndum, sem sett hafa verið um innflutning búfjár. — Hv. þm. Mýr. lét í það skína, að hingað ætti að flytja inn nýfædda kálfa. Um þennan flutning stendur ekkert í lögunum eða í frv., og er það alveg eftir geðþótta, á hvaða aldri þessir nautgripir verða. Á hinn bóginn lítum við svo á, að úr því að l. heimila að flytja inn sæði, þá sé ekki ástæða að spyrna gegn því að gera tilraunir með það, ef öðrum skilyrðum er fullnægt. Þá er sagt, að þetta sé seinvirkt, og játa ég, að svo sé, en þetta hefur líka alltaf kveðið við, að önnur aðferð væri fljótvirkari, og því fór sem fór. Það er sem sagt borin fram sama röksemd og alltaf hefur verið fyrir þessum innflutningi.

Ég vil rétt minna á, að hingað voru fluttir inn nautgripir af útlendu holdakyni 1932 eða 1933. Voru þeir af skozku holdakyni. Í þessum nautgripum kom fram sjúkdómur, en Magnús bóndi á Blikastöðum fékk að taka kálf undan einni kvígunni, og var hann tekinn frá henni strax eftir burðinn. Þetta kom síðan ekki að sök. Var þetta naut, sem síðan hefur verið notað til kynbóta, og út af því eru komnir kynblendingar. Þykja þessir nautgripir gefa betra kjöt en hinir innlendu. Mér fyndist nú hægt að flýta fyrir skjótum árangri með því að styðjast við þessa blendinga, sem fyrir eru, og innflutning sæðis. Þannig þyrftu ekki að líða mörg ár, þangað til yrði sem næst um hreinkynja stofn að ræða, ef vel tækist. En ég vil ekki svo mikinn hraða í þessu máli, að nein hætta geti stafað af. Og ég hygg, að minni hl. sé á einu máli um það að leggja til, að að þessu verði farið með allri gát og ekki sé slakað á þeim ákvæðum, sem nú eru til, að öðru leyti en því, að þessum aðilum sé leyft að flytja inn sæði undir ströngu eftirliti. Við leggjum til, að á frv. verði gerð sú breyt., að alls staðar þar, sem talað er um nautgripi og innflutning nautgripa, falli þau orð burt.