26.01.1951
Neðri deild: 56. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 332 í C-deild Alþingistíðinda. (3560)

158. mál, Akademía Íslands

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég er eindregið fylgjandi hugmyndinni um stofnun akademis á Íslandi. Ég hef þrívegis flutt frv., sem í felast ákvæði um, að komið skuli á fót stofnun, sem beri nafnið listarráð eða akademi. Að vísu hef ég í þeim frv., sem ég hef flutt um þetta, síðast á þessu þingi, frv. á þskj. 42, ætlað listarráði að hafa nokkuð annað verkefni en gert er ráð fyrir í þessu frv. hæstv. menntmrh.

Hlutverk Akademíunnar samkvæmt þessu frv. á fyrst og fremst að vera varðveizla tungunnar. Akademíuna eiga að skipa bæði fræðimenn á sviði bókmennta og rithöfundar, og á stofnunin að vera skipuð af forseta Íslands. Í þeim frv., sem ég hef flutt um akademi, hef ég gert ráð fyrir því, að í listarráði eigi sæti 12 helztu listamenn þjóðarinnar, skáld, rithöfundar og aðrir listamenn, er verðugir þættu árlegra heiðurslauna og ákveðið hefur verið, að skuli njóta þeirra ævilangt. Þeirri stofnun hefur í mínu frv. verið ætlað að vera menntmrn. og menntamálaráði til ráðuneytis um mál, er varða listir, og jafnframt til ráðuneytis varðandi úthlutun listamannastyrks, en ég hef gert ráð fyrir því, að Alþ. sjálft ákveði, hver skáld, rithöfundar og aðrir listamenn skuli njóta heiðurslauna og skipi þar með listarráð. Sú stofnun, sem gert er ráð fyrir í því frv., sem ég flyt, yrði hrein listastofnun, og henni er ætlað ákveðið verkefni í sambandi við lausn mála, sem brýna nauðsyn ber til að leysa, þ. e. a. s. varðandi úthlutun listamannalauna, og auk þess er henni ætlað að vera ríkisvaldinu til leiðbeiningar í listmálefnum. Ekkert verkefni er nútíma ríkisvaldi í rauninni fjarskyldara en að taka afstöðu til listamálefna. Engin mál eru síður til þess fallin að vera háð úrskurði ríkisvaldsins en málefni á sviði lista, og því væri það gagnlegt, að helztu listamenn þjóðarinnar skipuðu launaðir virðulega stofnun, sem væri ríkisvaldinu til ráðuneytis um slík mál. Um það er yfirleitt samkomulag í lýðræðislöndum, að bein afskipti ríkisvaldsins af listamálefnum séu skaðleg, og dæmi frá öðrum löndum staðfesta þá skoðun. Ríkisvaldið ætti því að forðast bein afskipti af slíkum málum, en það væri gagnlegt að hafa því til leiðbeiningar og ráðuneytis þá aðila, sem hæfastir eru taldir á þessu sviði. Slíka stofnun vantar hér, og úr því vildi ég reyna að bæta með frv. mínu. Hlutverk Akademíunnar í frv. á þskj. 536 er hins vegar að gæta tungunnar fyrst og fremst. Um þetta er það að segja að hér vantar ekki stofnun, sem hafi það hlutverk að gæta tungunnar. Ég á þar við heimspekideild háskólans. Það hefur verið og á að vera eitt meginhlutverk heimspekideildarinnar að gæta tungunnar, varðveita hana, halda henni hreinni og tærri og auðga hana. M. a. þess vegna hefur verið betur við hana gert en nokkra aðra deild háskólans. Þar starfa nú 7 prófessorar í norrænum fræðum og einn í heimspeki. Ég tel, að þau verkefni, sem háskólaráð hefur bent á í bréfi sínu, að Akademían ætti fyrst og fremst að sinna, séu verkefni heimspekideildar. Háskólaráð nefnir fyrst sem verkefni Akademíunnar „að hafa yfirstjórn samningar og útgáfu vísindalegrar orðabókar íslenzkrar.“ Það verkefni er þegar í höndum háskólans. „Að láta semja samheitaorðabók.“ Það verkefni er bezt komið í höndum fræðimanna á sviði málvísinda, og þá er fyrst og fremst að fínna innan heimspekideildar. „Að gefa út á hæfilegum fresti skrá um nýyrði .... og gefa út rit um íslenzk mannanöfn.“ Allt, sem hér er nefnt, eru fyrst og fremst hrein vísindaleg viðfangsefni, sem eiga að vera í höndum vísindamanna á sviði málfræði. Það er svo annað mál, að margs konar samvinna málvísindamanna og rithöfunda er æskileg, er vinna skal að varðveizlu og auðgun tungunnar. Mér er þó til efs, að sú samvinna verði bezt skipulögð á þann hátt, sem gert er ráð fyrir í þessu frv. Ég vona, að enginn skilji orð mín sem andmæli gegn því, að brýna nauðsyn beri til þess að gera sérstakar ráðstafanir til varðveizlu tungunnar. Ég tek undir ummæli hæstv. menntmrh. um það efni. Vissulega ber nauðsyn til að standa vel á verði í þeim efnum og betur en gert hefur verið undanfarið. Spurningin er aðeins um það, hvaða leið til þess sé heppilegust. Hins vegar tel ég einnig bera brýna nauðsyn til að koma á nýrri skipan í listamálefnum landsins, því að þar hefur bókstaflega ekkert verið gert, þar er engin stofnun fyrir hendi, sem treysta megi og ríkisvaldið eigi aðgang að. Listamenn hafa að vísu sjálfstæðan félagsskap, eins og vísindamenn hafa sinn félagsskap, en ríkisvaldið hefur þessar stofnanir ekki sér til ráðuneytis. Slíkri stofnun þarf því að koma á fót. Einkum er það nauðsynlegt til þess að koma nýrri skipan á úthlutun listamannalauna. Alþ. hefur ekki fengizt til þess að sinna því máli, þó að fyrir hafi legið um það mörg frv., þrjú, sem ég hef flutt, og 2–3 frá öðrum þm. Ef til vill hafa þeir, sem úthlutað hafa listamannalaunum, verið í of nánum tengslum við stjórnmálaflokkana til þess að þeir hafi viljað hér nokkra breytingu á. Flokkarnir sleppa ógjarnan þeim ítökum, sem þeir hafa. Er auðvelt að nefna dæmi um, að hlutdrægni hafi verið beitt við úthlutun listamannalauna af stjórnmálaástæðum. Slíkt má ekki eiga sér stað, og skipun þessara mála á ekki að vera þannig, að ýtt sé undir slíkt. En þrátt fyrir allt hefur ekki verið hægt að knýja meiri hl. Alþ. og valdamenn til þess að sinna þessu máli og gera nauðsynlegar ráðstafanir til úrbóta. Mig langar til þess að beina þeirri spurningu til hæstv. menntmrh., hvort hann hafi enga skoðun myndað sér á því, hvað gera eigi í þessum málum. Ég þykist þess fullviss, að hann hafi hugsað málið, og langar því að vita, hvort einhverra tillagna sé að vænta frá honum.

Um nafnið, sem stofnuninni hefur verið valið í þessu frv., Akademía, og það hvort orðið ætti að teljast kvenkyns, þá get ég ekki stillt mig um að segja, að mér finnst ekki reglulega góð byrjun varðandi stofnun, sem á að vinna að varðveizlu íslenzkrar tungu og eflingu hennar, að henni sé valið að heiti erlent orð, sem er auk þess ekki íslenzkulegra en orðið Akademía. Ég segi þetta án minnstu illkvittni. Það er fullkomlega rétt hjá hæstv. menntmrh., að það hefur tíðkazt og oft farið vel á því að taka útlend orð upp í íslenzku. Það hefur oft verið gert með þeim hætti, að ekki hefur sært málsmekk nokkurs manns. En ég vil leyfa mér að benda á, að þegar þetta hefur tekizt vel, þá hefur það yfirleitt verið gert með þeim hætti, að útlendur stofn hefur verið tekinn upp og honum fengin íslenzk ending. En hér er aftur á móti tekið upp erlent orð með endingu, sem á illa við íslenzkt mál, og endingin „ía“ fer ekki vel í íslenzku. Þetta er auðvitað aukaatriði, sem athugað verður hjá þeirri n., sem fær málið til meðferðar.

Að síðustu vil ég endurtaka, að ég mæli mjög með sjálfri hugmyndinni, sem hér um ræðir, hugmyndinni um íslenzkt akademi, og vil ég beina því til þeirrar n., sem fær málið til meðferðar, að athuga vel, hvernig skynsamlegast sé að afmarka verksvið slíkrar stofnunar, og hugleiða, hvaða nafn væri heppilegast að gefa henni.